fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

Ný ákæra í hryðjuverkamálinu – Segir stöðuna óbreytta

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 9. júní 2023 10:27

Sveinn Andri Sveinsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur gefið út nýja ákæru í hryðjuverkamálinu, þar sem tveir ungir menn voru sakaðir um skipulagningu hryðjuverka. Fyrri ákæru var vísað frá dómi, bæði í héraðsdómi og Landsrétti.

Ákæran verður ekki birt sakborningunum fyrr en á mánudag en þá verður hún þingfest. DV ræddi við Svein Andra Sveinsson, lögmann annars sakborninganna, og segir hann stöðuna óbreytta eftir þessa nýju ákæru, sem hann hefur undir höndum en getur hvorki afhent né greint ítarlega frá efni hennar.

Sveinn segir héraðssaksóknara núna leitast við að sneiða framhjá frávísun og fá efnisdóm um málið.

„Hin nýja ákæra er talsvert ítarlegri en sú fyrri, en að mínu mati er staðan óbreytt, tilraunabrot ákærunnar er enn jafn óljóst og áður; hvað hafi staðið til að gera, hvar, hvenær, hvernig og gegn hverjum,“ segir Sveinn Andri Sveinsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Jón leggur til róttæka breytingu á frídögum – „Að mínu mati er þetta fyrirkomulag óheppilegt“

Jón leggur til róttæka breytingu á frídögum – „Að mínu mati er þetta fyrirkomulag óheppilegt“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“
Fréttir
Í gær

Hrollvekjandi uppgötvun í niðurníddu verksmiðjuhúsnæði sögð benda til þess að Madeleine McCann sé látin

Hrollvekjandi uppgötvun í niðurníddu verksmiðjuhúsnæði sögð benda til þess að Madeleine McCann sé látin
Fréttir
Í gær

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“