fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Fréttir

Neyðarstig almannavarna vegna snjóflóða í Neskaupstað – Snjóþyngsli gera viðbragðsaðilum erfitt fyrir

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. mars 2023 10:20

Myndirnar eru teknar fyrir utan snjóflæðasvæðið í Neskaupstað í morgun en sýna vel þá miklu snjókomu sem hefur verið síðasta sólarhringinn. Myndir/Kristín Hávarðsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lýst hefur verið yfir neyðarstigi Almannavarna vegna þriggja snjóflóða á Neskaupstað nú í morgun. Eitt snjóflóð féll á hús í byggð við Starmýri í bænum en hin tvö lentu ekki á byggð. Annað þeirra þveraði Strandgötu, sem liggur út úr bænum, og í sjó fram.

Engar fréttir af alvarlegum meiðslum

Búið er að rýma allar íbúðir í húsum sem flóðið féll á en blessunarlega virðist sem svo að fólk hafi sloppið við alvarleg meiðsli. Einhverjir eru þó sárir vegna glerbrota í kjölfar þess að gluggar sprungu í húsinu við Starmýri.

Verið er að rýma hús í Neskaupstað og auk þess sem umfangsmikil rýming húsi stendur yfir á Seyðisfirði vegna frekari hættu á flóðum. Fjöldahjálparstöð hefur verið opnuð í Egilsbúð í Neskaupstað, þar sem tekið er á móti fólki sem þarf að yfirgefa hús sín. Tæplega fjörtíu einstaklingar hafa leitað þangað þegar þessi orð eru skrifuð. Þá hefur skólahald verið fellt niður í fjórðungnum og starfsemi fjölda fyrirtækja og stofnanna raskast.

Afar snjóþungt er á svæðinu sem gerir viðbragðsaðilum erfitt fyrir. Flestar götur í Neskaupstað eru ófærar en Vegagerðin reynir að ryðja götur fyrir björgunaraðila að athafna sig.

Þeir íbúar sem þurfa ekki að rýma hús sín, að svo stöddu, eru hvattir til að halda kyrru fyrir heima hjá sér, hlémegin í húsum og bíða frekari upplýsinga. Íbúar annars staðar á Austurlandi hafa einnig verið beðnir að halda sig heima við.

Þetta þarftu að gera við rýmingu

Fyrir þá sem þurfa að rýma húsin sín þá birti Lögreglan á Austurlandi eftirfarandi gátlista yfir það sem gera þarf áður en heimilið er yfirgefið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Með stútfullan farangur af fíkniefnum og sterum – Geymdi amfetamínbasa í tveimur vínflöskum

Með stútfullan farangur af fíkniefnum og sterum – Geymdi amfetamínbasa í tveimur vínflöskum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Átta manns stefna Ísbúðinni okkar fyrir vangoldin laun – Málið sagt stefna í dómsátt

Átta manns stefna Ísbúðinni okkar fyrir vangoldin laun – Málið sagt stefna í dómsátt
Fréttir
Í gær

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist
Fréttir
Í gær

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“

Andri bendir á hatrið sem Charlie Kirk boðaði – „Hugnaðist til dæmis ekki að sitja í flugvél með svörtum flugmanni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“

Kynbundið ofbeldi grasserar í netheimum – „Síðan ertu einhvern veginn hvergi óhult“