fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þetta er regla Arnars Þórs – „Hægt og rólega fær maður rétta mynd af því sem gerðist“

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 26. mars 2023 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Fannar Sigurðsson skrifar frá Liechtenstein

Arnar Þór Viðarsson sat fyrir svörum á fréttamannafundi hér í Liechtenstein í gær. Ísland og Liechtenstein mætast í undankeppni Evrópumótsins 2024 í dag.

Íslenska liðið byrjaði undankeppnina hreint skelfilega, með 3-0 tapi gegn Bosníu-Hersegóvínu.

Hann segir að leikmenn hafi eðlilega verið sárir eftir tapið en að nú sé hugur þeirra kominn á leik dagsins.

„Það er ein regla sem ég styðst við. Hún er að þú mátt vera fúll í 24 klukkutíma eftir tap. Þú mátt líka vera mjög ánægður og hátt uppi í 24 klukkutíma eftir sigur,“ sagði Arnar á fundinum í gær.

Tapið var Arnari og leikmönnum hins vegar erfitt.

„Þetta var erfiður dagur. Ég held að það sé aðallega erfitt að ná sér andlega niður, hvort sem maður er þjálfari eða leikmaður. Leikurinn spilast í hausnum á manni hundrað sinnum. Hægt og rólega fær maður rétta mynd af því sem gerðist. Það er það sem dagurinn í gær var notaður til að greina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn