fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
Fréttir

Sérsveitarmaður með áfallastreituröskun eftir lífshættulega aðgerð í Hraunbæ

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 16. mars 2023 20:53

Sérsveitarmenn á æfingu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mynd/Gunnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir mál fyrrverandi liðsmanns sérsveitar ríkislögreglustjóra sem glímir við áfallastreituröskun eftir aðgerð sérsveitarinnar í Hraunbæ árið 2013. Þar var umsátur um vopnaðan íbúa sem skaut út um glugga og fram á stigagang úr íbúð sinni. Sérsveitin felldi manninn og er það í fyrsta skipti sem lögregla á Íslandi skýtur mann til bana.

Sérsveitarmaðurinn upplifði sig í mikilli lífshættu á vettvangi og glímdi við áfallastreituröskun í kjölfarið. Héraðsdómur mat það svo að maðurninn ætti rétt á skaðabótum frá tryggingafélaginu VÍS og var félagið dæmt til að greiða honum 2,4 milljónir króna. Landsréttur sneri dómnum  hins vegar við og sýknaði VÍS af kröfunni. Maðurinn var metinn af læknum með áfallastreitu en fyrir dómi var tekist á um hvort krafa hans væri fyrnd.

Maðurinn sótti þá um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar og það hefur nú verið samþykkt. Í ákvörðun Hæstaréttar er það reifað að sérsveitarmaðurinn telji úrslit málsins hafa verulegt almennt gildi enda sé tekist á um mat á fyrningarfresti í tengslum við einkenni áfallastreituröskunar sem komi seint fram. Ennfremur sé tekist á um hvort fjögurra ára eða tíu ára fyrningarfrestur gildi um kröfur úr slysatryggingu.

„Að virtum gögnum málsins verður talið að dómur í því geti haft fordæmisgildi um fyrningu kröfu á sviði vátrygginga. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt,“ segir Hæstiréttur.

Sjá nánar hér.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að ökumanni á bláum jeppa – Ók á konu á rafmagnshlaupahjóli

Lögreglan leitar að ökumanni á bláum jeppa – Ók á konu á rafmagnshlaupahjóli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jónas Már um málþóf Sjálfstæðisflokksins – „Ég bið ekki um meira en smá fjölbreytni í dagskrána“

Jónas Már um málþóf Sjálfstæðisflokksins – „Ég bið ekki um meira en smá fjölbreytni í dagskrána“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Halldóra andmælir Grími – „Skipulögð brotastarfsemi er ekkert náttúrulögmál“

Halldóra andmælir Grími – „Skipulögð brotastarfsemi er ekkert náttúrulögmál“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Metnaðarfullt loftslagsverkefni Climeworks sagt fjarri markmiðum – Föngun koltvísýrings standi ekki undir þeirra eigin losun

Metnaðarfullt loftslagsverkefni Climeworks sagt fjarri markmiðum – Föngun koltvísýrings standi ekki undir þeirra eigin losun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sýður á eldri borgurum við Herjólfsgötu vegna saunahúss – „Við viljum að þetta fari“

Sýður á eldri borgurum við Herjólfsgötu vegna saunahúss – „Við viljum að þetta fari“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Róttæk breyting hjá Netflix – Svona mun nýja notendaviðmótið líta út

Róttæk breyting hjá Netflix – Svona mun nýja notendaviðmótið líta út