Eflaust hefur þú einhvern tímann starað á tunglið og dáðst að því en hefur þú einhvern tímann hugleitt hvað klukkan er þarna uppi?
Ef þú ert meðal þeirra sem hafa hugleitt þetta, þá getur þú hugsanlega fengið svar við þessu fljótlega. Ástæðan er að geimferðastofnanir eru að íhuga að láta tunglið fá sitt eigið tímabelti.
Sky News skýrir frá þessu og segir að meðal þeirra tunglferða sem séu í bígerð sé ein þar sem sé stefnt á að koma upp bækistöð þar.
Það var í nóvember á síðasta ári sem geimferðastofnanir byrjuðu að ræða um hvernig eigi að hátta tímamælingum á tunglinu.
Pietro Giordano, siglingarkerfisverkfræðingur hjá Evrópsku geimferðastofnuninni ESA, sagði að fulltrúar geimferðastofnananna hafi verið sammála um mikilvægi þess að skilgreina hvaða tímabelti eigi að vera á tunglinu og það sem fyrst. Þetta verði að vera eitthvað sem verði samþykkt á alþjóðavettvangi og eitthvað sem allir geta notast við.
Fram að þessu hefur sérhver tunglferð fylgt eigin tímaskala og hafa loftnet, langt úti í geimnum, verið notuð til að samstilla tímann við tímann á jörðinni.
Eins og GPS er notað til staðsetninga hér á jörðinni þá getur slíkur búnaður á tunglinu komið að góðu gagni við geimferðir.
Eitt af þeim vandamálum sem þarf að takast á við í tengslum við tímamælingar á tunglinu er að klukkur ganga hraðar þar en á jörðinni. Ástæðan er að klukkur ganga hægar í meira þyngdarafli.