fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Kadyrov íhugar að stofna einkaher á borð við Wagnerhópinn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 24. febrúar 2023 07:00

Ramzan Kadyrov. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Málaliðar úr Wagnerhópnum, téténskir undirmenn Ramzan Kadyrov leiðtoga Téténíu og rússneski herinn eiga það sameiginlegt að berjast í Úkraínu undir fána Rússlands.

En svo virðist sem hinu góða samstarfi þeirra ljúki þar því leiðtogar þessara þriggja hópa, Yevgeny Prigozhin eigandi Wagner, Ramsan Kadyrov leiðtogi Téténíu

og Vladímír Pútín Rússlandsforseti, eru ekki alltaf ánægðir með hver annan.

Þetta kemur fram í nýlegu mati bandarísku hugveitunnar Institute for the Study of War (ISW) um gang stríðsins í Úkraínu.

Í þessu mati kemur meðal annars fram að Prigozhin sé að reyna að auka völd sín í Rússlandi með því að reyna að tryggja Wagner-hópnum stöðuna sem úrvalshermenn landsins. Hann hefur ítrekað gagnrýnt rússneska varnarmálaráðuneytið og herinn í þeirri viðleitni sinni að láta Wagner-hópinn taka yfir fleiri þætti stríðsrekstursins.

ISW segir að Prigozhin hafi reynt að fá Kadyrov og hermenn hans til að snúast gegn rússneska varnarmálaráðuneytinu og þar með stjórn Pútíns.

Þessu hefur Kadyrov hafnað að sögn ISW því hann sjái mun meiri ávinning af að halda núverandi stöðu sinni sem leiðtogi Téténíu en að mynda bandalag með Prigozhin í deilum við Pútín.

Flemming Splidsboel, sérfræðingur í rússneskum málefnum hjá dönsku hugveitunni DIIS, sagði í samtali við TV2 að svo virðist sem einhverskonar uppgjör eigi sér stað á milli Kadyrov og Prigozhin. Þeir hafi haft sömu stefnu en nú geti verið að Kadyrov telji að Prigozhin hafi gengið of langt.

ISW segir að Prigozhin ætli nú að reyna að fá rússneska öfgaþjóðernissinna til liðs við Wagner í áróðursstríði hans gegn rússneska hernum.

Splidsboel sagði að orðrómar hafi verið um að Prigozhin hafi verið ýtt til hliðar og hafi beðið ákveðinn skaða. Hann sagðist ekki telja að hann sé búinn að vera eins og sumir hafa haldið fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Landbúnaðarháskólinn vill láta bera þýska konu út úr leiguhúsnæði

Landbúnaðarháskólinn vill láta bera þýska konu út úr leiguhúsnæði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill kemur þéttingu byggðar til varnar – „Nauðsynleg og óhjákvæmileg“

Egill kemur þéttingu byggðar til varnar – „Nauðsynleg og óhjákvæmileg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fráleitt að rugla skipulag Grafarvogs með þéttingu – „Borgarstjórnin nýja getur enn þá hætt við“

Fráleitt að rugla skipulag Grafarvogs með þéttingu – „Borgarstjórnin nýja getur enn þá hætt við“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan leitar að ökumanni á bláum jeppa – Ók á konu á rafmagnshlaupahjóli

Lögreglan leitar að ökumanni á bláum jeppa – Ók á konu á rafmagnshlaupahjóli
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jónas Már um málþóf Sjálfstæðisflokksins – „Ég bið ekki um meira en smá fjölbreytni í dagskrána“

Jónas Már um málþóf Sjálfstæðisflokksins – „Ég bið ekki um meira en smá fjölbreytni í dagskrána“