fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
433Sport

Ómar Ingi íþróttamaður ársins annað árið í röð

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 29. desember 2022 20:45

Ómar Ingi Magnússon - Mynd/EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íþróttamaður ársins 2022 er handboltamaðurinn Ómar Ingi Magnússon hjá Magdeburg.

Ómar er aðeins annar handboltamaðurinn til að hreppa titilinn íþróttamaður ársins oftar en einu sinni. Ólafur Stefánsson hlaut heiðurinn fjórum sinnum.

Það munaði aðeins fimm stigum að Ómar ynni með fullu húsi stiga í ár. Hann varð efstur á 30 atkvæðaseðlum af 31 í ár. Hann var settur í 2. sæti á seðlinum þar sem hann var ekki efstur.

Þetta er nú í fjórtánda sinn sem handboltamaður er íþróttamaður ársins. Sigríður Sigurðardóttir vann fyrst (1964) svo hafa það verið Geir Hallsteinsson (1968), Hjalti Einarsson (1971), Alfreð Gíslason (1989), Geir Sveinsson (1997), Ólafur Stefánsson (2002, 2003, 2008 og 2009), Guðjón Valur Sigurðsson (2006), Alexander Petersson (2010), Aron Pálmarsson (2012) og Ómar Ingi Magnússon (2021 og 2022).

Frjálsíþróttafólk hefur oftast verið kjörið, ellefu einstaklingar í samtals 21 skipti af 66, en þó aldrei frá því Vala Flosadóttir fékk titilinn árið 2000.

Þó karlar séu í miklum meirihluta yfir sigurvegara kjörsins frá upphafi þess hafa konur þó hreppt titilinn fjórum sinnum á síðustu átta árum.

Íþróttamaður ársins 2022:
1. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur – 615
2. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna – 276
3. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur – 273
4. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf – 172
5. Anton Sveinn McKee, sund – 164
6. Sandra Sigurðardóttir, fótbolti – 136
7. Elvar Már Friðriksson, körfubolti – 85
8. Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingar – 73
9. Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti – 65
10. Viktor Gísli Hallgrímsson, handbolti – 62
11. Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir – 62
12. Sveindís Jane Jónsdóttir, fótbolti – 50
13. Snorri Einarsson, skíði – 43
14. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, golf – 43
15. Bjarki Már Elísson, handbolti – 30
16. Hákon Arnar Haraldsson, fótbolti – 26
17. Dagný Brynjarsdóttir, fótbolti – 24
18. Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir – 19
19. Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar – 9
20. Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar – 9
21. Thelma Björg Björnsdóttir, íþróttir fatlaðra – 6
22. Hilmar Snær Örvarsson, íþróttir fatlaðra – 5
23. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut – 5
24. Eygló Fanndal Sturludóttir, lyftingar – 5
25. Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti – 3
26. Valgarð Reinhardsson, fimleikar – 2
27. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, golf – 1

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Lögreglan á Spáni tjáir sig um rannsókn málsins – „Bendir allt til þess að ökutækið hafi verið á töluvert meiri hraða en leyfður er“

Lögreglan á Spáni tjáir sig um rannsókn málsins – „Bendir allt til þess að ökutækið hafi verið á töluvert meiri hraða en leyfður er“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leita sér að nýju heimili til að byrja nýtt líf – Fær fyrirgefningu og útiloka ekki fimmta barnið

Leita sér að nýju heimili til að byrja nýtt líf – Fær fyrirgefningu og útiloka ekki fimmta barnið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sandra um muninn: „Eitt af því sem einkennir okkur“

Sandra um muninn: „Eitt af því sem einkennir okkur“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Elanga keyptur fyrir 55 milljónir

Elanga keyptur fyrir 55 milljónir
433Sport
Í gær

Palmer viðurkennir erfiðleika – ,,Hann er alltaf til staðar fyrir mig“

Palmer viðurkennir erfiðleika – ,,Hann er alltaf til staðar fyrir mig“
433Sport
Í gær

Messi og ‘lífvörðurinn’ mögulega sameinaðir

Messi og ‘lífvörðurinn’ mögulega sameinaðir
433Sport
Í gær

Margrét Lára ræðir vonbrigðin í Sviss – „Ég er alltof gömul til að tjá mig um þetta“

Margrét Lára ræðir vonbrigðin í Sviss – „Ég er alltof gömul til að tjá mig um þetta“