fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Lögreglan stöðvaði mótmæli leigubílstjóra

Ritstjórn DV
Föstudaginn 16. desember 2022 10:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leigubílstjórar lögðu undir sig Tjarnargötu í morgun og flautuðu í sífellu fyrir utan ráðherrabústaðinn á meðan ríkisstjórnarfundur stóð þar yfir.

Fréttablaðið greinir frá.

Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingar á lögum um leigubílaakstur. Með sam­þykkt frum­varpsins verður ein­stak­lingum og rekstrar­aðilum gert heimilt að reka leigu­bíl án þess að vera bundnir við leigubílastöð eða hafa starfið að aðal­at­vinnu. Getur það opnað fyrir starf­semi deilu­bíla­þjónusta líkt og Uber sem rutt hafa sér til rúms er­lendis.

Við þetta eru leigubílstjórar mjög ósáttir. Þeir telja frumvarpið hvorttveggja vega að starfsöryggi leigubílstjóra og öryggi almennings.

„Bandalag íslenskra leigubílstjóra biður ríkisstjórnina um að veita starfandi leigubílstjórum áheyrn vegna lagafrumvarps um leigubifreiðaakstur,“  segir í ákalli leigubílstjóra til ráðamanna sem lesið var upp fyrir utan ráðherrabústaðinn.

Telja bílstjórarnir að ekki sé nægilega tekið tillit til starfandi bílstjóra og aðstæðna í greininni. Daníel O. Einarsson, formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra, segir í samtali við Fréttablaðið að óskað hafi verið eftir viðtali við ráðherra fyrir aðra umræðu á Alþingi um frumvarpið, en að það hafi ekki fengist og að óskað sé eftir því að beðið sé með að samþykkja frumvarpið þar til að Norðmenn hafa farið yfir endurskoðun sinna laga um leigubílaakstur, en sú vinna er í gangi.

Lögregla stöðvaði mótmæli leigubílstjóranna í Tjarnargötu í morgun og leystust þau upp áður en ríkisstjórnarfundi lauk. Meðfylgjandi myndir tók Sigtryggur Ari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart