Þann 22. nóvember voru liðin 35 ár frá hvarfi hins tvítuga Guðmundar Finns Björnssonar. Á þessum tímamótum er vakin athygli á Facebook-síðunni Íslensk mannshvörf sem Bjarki Hólmgeir Halldórsson hefur veg og vanda að. Í færslu í tilefni af tímamótunum segir að um sé að ræða eitt dularfyllsta mannshvarf sem orðið hefur á Íslandi en Guðmundur Finnur hvarf þegar hann var úti að fagna tvítugsafmæli sínu og sást aldrei meira.
Guðmundur frá Hvannarbrekku í Beruneshreppi og var fæddur þann 19. nóvember 1967, næst yngstur sjö systkina. Hann var búsettur hjá systur sinni í Reykjavík og nam bifvélavirkjun. Hann var reglulsamur og ljúfur drengur sem hann yndi af hverskonar vélbúnaði og átti það til að fara út á Reykjavíkurflugvöll að skoða flugvélar.
„Laugardagskvöldið 21. nóvember 1987 fór hann frá heimili sínu ásamt Ragnari bróður sínum og vini hans. Þeir voru að fagna afmæli Guðmundar en hann hafði orðið tvítugur nokkrum dögum áður. Stefnan var sett á skemmtistaðinn Hollywood í Ármúla og tóku þeir sér far þangað með leigubíl. Þegar þangað var komið fóru samferðamenn hans í röðina fyrir utan staðinn en Guðmundur hinkraði við og borgaði leigubílinn. Hann hugðist svo fara inn í röðina hjá bróður sínum en kona sem var á eftir þeim i röðinni mótmælti því og fór Guðmundur aftast í röðina fyrir kurteisis sakir. Guðmundur fór aldrei inn í Hollywood og Ragnar sá bróðir sinn aldrei aftur,“ segir í færslu á Facebook-síðunni.
Fljótlega hófst umfangsmikil leit og var auglýst eftir Guðmundi í fjölmiðlum. . Þar var honum lýst sem ljóshærðum, grönnum, 182 sm á hæð með gleraugu. Hann var klæddur í ljós gránn herrafatajakka, ljós gráar buxur, skyrtu, í svörtum skóm og með bindi. Sporhundur sem fenginn var á svæðið rakti slóð Guðmundar frá Hollywood, í gegnum hlíðarnar og út á Reykjvaíkurflugvöll þar sem slóðin hvarf. Snorra Óskarssyni sem hafði umsjón með hundinum fannst það skrítið að slóðin hafi tapast svo skyndilega.