Viðar Freyr var boðaður á fund en mætti ekki – Svaraði fyrir sig á kostulegan hátt
Viðar Freyr Guðmundsson ákvað að bregða á leik þegar Vinnumálastofnun setti út á að hann hefði ekki mætt á boðaðan fund hjá stofnuninni. Forsaga málsins er sú að Viðar hafði sótt um atvinnuleysisbætur og þurfti hann í kjölfarið að skila inn ótal gögnum, vottorðum og fleiru.
Viðar segir að hann hafi svo verið boðaður á fund sem skyldumæting var á. „Ég fékk vinnu fljótlega eftir umsóknina og nennti satt best að segja ekki að standa í þessu rugli. Þangað til ég fékk hótun vegna þess að ég mætti ekki á umræddan fund,“ segir Viðar en hann deilir þessu í opinni færslu á Facebook-síðu sinni.
Í póstinum frá Vinnumálastofnun var óskað eftir skýringum frá Viðari á því af hverju hann mætti ekki á fundinn. Þurfti hann að láta fylgja með nafn og kennitölu og það tekið fram að það sé meginskilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit.
Hann ákvað að bregða á leik og svara skrifræði með skrifræði. „Hérna er svar mitt. Þetta kalla ég að svara í sömu mynt.“
„Góðan dag. Umsókn þín um að vita um ferðir mínar umræddan dag hefur verið móttekin. Ég vil benda á að eftirfarandi gögn vantar til að afgreiða megi umsóknina.
Hann telur upp fleiri atriði, rétt eins og Vinnumálastofnun gerði.
(function(d, s, id) { var js, fjs = d.getElementsByTagName(s)[0]; if (d.getElementById(id)) return; js = d.createElement(s); js.id = id; js.src = „//connect.facebook.net/en_GB/sdk.js#xfbml=1&version=v2.3“; fjs.parentNode.insertBefore(js, fjs);}(document, ‘script’, ‘facebook-jssdk’));
Ég sótti um atvinnuleysisbætur fyrir nokkra daga. En það þurfti að skila inn ótal gögnum, vottorðum og yfirlýsingum…
Posted by Viðar Freyr Guðmundsson on Monday, 15 February 2016