fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hjónin hafa ekki tekið einn einasta frídag í 15 ár – „Við njótum hvers dags“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 19. október 2022 05:50

Mynd úr safni. Tengist frétt ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir vinna um 40 klukkustundir á viku, eiga frí um helgar eða á virkum dögum ef þeir þurfa að vinna um helgar, fá jólafrí, páskafrí, sumarfrí og kannski fleiri frí. Flestir ná eflaust að taka sér smá frí, kannski stutt sumarfrí en það gera hjónin Agnete Hansen og Henry Ole Larsen, sem búa í Noregi, ekki. Þau hafa ekki átt einn einasta frídag síðustu 15 árin.

Þau búa á sveitabæ í Pasvik í Norður-Noregi, örskammt frá rússnesku landamærunum. Bær þeirra stendur nærri árbakka og hinum megin við ána er Rússland.

Vinnudagur þeirra hjóna hefst klukkan 6 að morgni og lýkur ekki fyrr en seint að kvöldi. Þannig er þetta 365 daga á ári og 366 daga þegar hlaupár er.

„Við njótum hvers dags sem við eigum með dýrunum. Okkur líkar einnig við að vinna. Það veitir okkur mikla ánægju að vinna,“ sagði Agnete í samtali við Norska ríkisútvarpið.

Henry sagðist vinna 80 til 100 klukkustundir á viku og finnist það fínt.

„Þetta er ekki þess virði fjárhagslega en þetta er þess virði þegar kemur að vellíðan,“ sagði hann.

Hjónin telja að vinna þeir skipti samfélagið miklu máli því þau framleiða mat fyrir Norðmenn. „Sérhvert land, sem ber virðingu fyrir sjálfu sér, á að vera sjálfu sér nægt um mat að eins miklu leyti og hægt er. Við gerum það sem við getum til að það markmið náist,“ sagði Henry.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir