Ljósmyndin er tekin þann 15. ágúst 1998 á því er virðist friðsælli verslunargötu í bænum Omagh á Norður Írlandi. Augnabliki síðar sprakk rauði bíllinn í loft upp með þeim afleiðingum að 29 létust og rúmlega 200 særðust.
Meðal fórnarlamba voru níu börn, kona ólétt af tvíburum og tveir spænskir ferðamenn. Yngsta fórnarlambið var hin 18 mánaða Maura Monaghan sem lést ásamt móður sinni og ömmu.
Um var að ræða hryðjuverkaárás klofningshóps úr IRA og kallaði sig sá sá ,,The Real IRA”.
Mannskæðasta árásin
Frá 1968 til 1998 börðust írskir þjóðernissinnar fyrir sjálfstæði Norður Írlands frá Bretum og leiddu samtökin IRA þá baráttu, oft með hryðjuverkum. Gengur þetta tímabil undir nafninu ,,The Troubles“.
Talið er að um 3500 manns hafi látist í átökunum, flestir óbreyttir borgarar. Árásin í Omagh var sú mannskæðasta af árásum IRA og hópa tengdum samtökunum.
Þann 10. apríl sama ár hafði loksins verið skrifað undir langþráðan friðarsáttmála um stjórn Norður Írlands. Sáttmálinn var lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu og samþykktur. Lagði IRA niður vopn í kjölfarið. En það voru ekki allir sáttir við sáttmálann og þeir herskáustu innan IRA stofnuðu sín eigin samtök, ,,The Real IRA”.
Misskilningur
Líkt IRA hafði oft gert lét klofningshópurinn lögreglu vita af árásinni 40 mínútum fyrr.
En vegna misskilnings á misskilning ofan taldi lögregla að árásin yrði gerð á öðrum stað og vísaði því fólki í átt að götunni þar sem rauði bíllinn stóð, fullur af sprengiefni.
Maðurinn á myndinni svo og sonur hans lifðu sprenginguna af en ljósmyndarinn lést. Myndavélin fannst síðar í rústunum og var filman óskemmd. Var myndina þar að finna.
Forsvarsmenn IRA fordæmdu ódæðið en enginn hefur nokkurn tíma verið sóttur til saka fyrir morðin í Omagh.