fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ósakhæf börn játuðu að hafa kveikt í viðbyggingu St. Jósefsspítala

Ritstjórn DV
Mánudaginn 22. ágúst 2022 12:05

Mynd frá sjónarvotti

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ósakhæf börn hafa játað að hafa kveikt í þaki viðbyggingar St. Jósefsspítala í gær. Þetta kemur fram í frétt RÚV en játningarnar komu fram eftir  samtöl við lögreglu að viðstöddum forráðamönnum og fulltrúum barnaverndar. Rannsókn lögreglu er þar með lokið og telst málið upplýst.

Eins og DV greindi frá í gærkvöldi  kviknaði eldu í viðbyggingu við húsnæði sem áður hýsti St. Jósefsspítala í kvöld. „Okkur barst tilkynning um eldinn kl.22.30 í kvöld. Það eru þrjár sveitir á staðnum og mér skilst að það hafi logað eldur í þaki viðbyggingar þegar að þær komu á svæðið. Slökkvistarf gengur vel og þeir eru að ná tökum á aðstæðum,“ segir Hafsteinn Halldórsson, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliðinu.

Í fyrstu var talið að slökkvistarf yrði umfangsmikið og erfitt en viðbragðsaðilar náðu góðum tökum á eldinum strax og réðu niðurlögum hans hratt og vel.

Hér má sjá myndband af vettvangi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa