fbpx
Föstudagur 18.júlí 2025
433Sport

Viðræður United við mömmu Rabiot halda áfram

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 10. ágúst 2022 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Adrien Rabiot verður að öllum líkindum leikmaður Mancheter United á næstu dögum.

Franski miðjumaðurinn er á förum frá Juventus og verður Old Trafford að öllum líkindum áfangastaðurinn.

Juventus er meira en til í að selja leikmanninn. Því munu skiptin ganga í gegn um leið og hann sjálfur semur um sín kaup og kjör.

Samkomulag félaganna er í höfn en kaupverðið verður í kringum 15 milljónir punda samkvæmt Sky Sports.

Sky Sports segir að viðræður United við mömmu Rabiot séu í gangi en hún er einnig umboðsmaður hans. Hún er sögð afar hörð í viðræðunum.

Rabiot er næst launahæsti leikmaðurinn í Seriu A með 8 milljónir evra í árslaun og vill helst hækka í launum ef hann á að koma til United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta eru liðin sem Víkingar og Valur mæta

Þetta eru liðin sem Víkingar og Valur mæta
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ótrúlegur leikur í Sambandsdeildinni: Unnu fyrri leikinn 4-0 en eru úr leik – Fengu 60 skot á sig

Ótrúlegur leikur í Sambandsdeildinni: Unnu fyrri leikinn 4-0 en eru úr leik – Fengu 60 skot á sig
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Valur og Víkingur í eldlínu í Evrópu í dag – Bæði lið í góðri stöðu

Valur og Víkingur í eldlínu í Evrópu í dag – Bæði lið í góðri stöðu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Jón Páll ráðinn í þjálfarateymi Víkings

Jón Páll ráðinn í þjálfarateymi Víkings
433Sport
Í gær

Svona var tölfræði Ekitike á síðustu leiktíð – Færist nær Liverpool

Svona var tölfræði Ekitike á síðustu leiktíð – Færist nær Liverpool
433Sport
Í gær

Arsenal staðfestir kaupin – Er dýrasti leikmaður sögunnar

Arsenal staðfestir kaupin – Er dýrasti leikmaður sögunnar