fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Drífa Snædal segir af sér

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 10. ágúst 2022 09:53

Drífa Snædal. Mynd: ASÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drífa Snædal, forseti ASÍ hefur ákveðið að segja af sér embættinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Drífa birti á Facebook-síðu sinni fyrir stundu. Í yfirlýsingunni kemur fram að hún treysti sér ekki til að sinna embættinu áfram, yrði hún til þess kjörin í vetur, og því væri skynsamlegt í ljósi kjaraviðræðna og undirbúng þingsins að hætta sem fyrst. Ástæðan eru samskipti við ýmsa kjörna fulltrúa innan sambandsins og sú blokkmyndun sem þar hafi átt sér stað. Þá hafi átök innan ASÍ verið óbærileg að hennar sögn.

Yfirlýsing Drífu í heild sinni:

Ég hef ákveðið að segja af mér embætti forseta Alþýðusambands Íslands og þeim trúnaðarstöðum sem ég hef gegnt sem forseti. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Þing ASÍ er í byrjun október og ég þurfti að gera það upp við mig hvort ég gæfi áfram kost á mér. Þegar ég hugsaði málið varð niðurstaða mín sú að ég treysti mér ekki til að starfa áfram yrði ég til þess kjörin og af því leiddi að það væri skynsamlegt í ljósi kjaraviðræðna og undirbúning þingsins að hætta sem fyrst. Ég veit að ég nýt mikils stuðnings félaga og í samfélaginu og fyrir það er ég þakklát. Það eru hins vegar samskipti við ýmsa kjörna fulltrúa innan sambandsins og sú blokkamyndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem forseti ASÍ.
Ég hef ekki vílað fyrir mér að taka slaginn fyrir launafólk gagnvart stjórnvöldum eða atvinnurekendum enda er það hluti af því að vera í verkalýðsbaráttu. Átök innan ASÍ hafa hins vegar verið óbærileg og dregið úr vinnugleði og baráttuanda. Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttarfélaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið. Ég treysti mér ekki til að vinna með fólki sem ég á ekki samleið með í baráttunni. Og ég hef sem forseti verið í þeirri stöðu sem ég ætlaði mér aldrei; að telja mig ekki eiga annars kost en að gagnrýna stjórnarákvarðanir og formenn stærstu stéttarfélaga innan ASÍ. Þegar stjórn Eflingar stóð fyrir hópuppsögn á skrifstofu félagsins sá ég mig knúna til að mótmæla þeim, enda hefur verkalýðshreyfingin barist gegn hópuppsögnum í tímans rás. Ég þurfti einnig að bregðast við linnulausri, en óljósri gagnrýni formanns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í samskiptum hvert við annað innan hreyfingarinnar er henni ekki til framdráttar og félögum ekki til hagsbóta.

Verkalýðshreyfingin er ein merkilegasta mannréttindahreyfing heims og hjarta mitt hefur slegið þar og mun gera það áfram. Ég get hins vegar ekki sinnt störfum mínum lengur sem forseti ASÍ. Þá er hreinlegast að segja þetta gott. Og til að taka af allan vafa er þetta ekki hluti af einhverri stærri fléttu, ég einfaldlega hverf af þessum vettvangi án þess að hyggja á endurkomu.
Stuðningsfólki mínu þakka ég af öllu hjarta og bið um skilning á þessari ákvörðun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar