fbpx
Miðvikudagur 14.janúar 2026
433Sport

Verður smávaxnastur allra

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 27. júlí 2022 16:00

Martinez ásamt kærustu sinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martinez skrifaði í dag undir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United.

Martinez hefur undanfarin þrjú tímabil spilað fyrir Ajax þar sem hann lék meðal annars undir stjórn núverandi knattspyrnustjóra Manchester United, Erik ten Hag.

Martinez er miðvörður að upplagi en getur einnig leikið sem vinstri bakvörður og á miðjunni.

Hann er nú smávaxnasti miðvörður fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Martinez er 1,75 metrar á hæð.

Sá sem veitir honum mesta samkeppni er Cesar Azpilicueta, sem gjarnan spilar hægra megin í þriggja miðvarða kerfi. Spánverjinn er 1,78 metrar á hæð.

,,Það er heiður að vera orðinn leikmaður Manchester Untied. Ég hef lagt mikið á mig í gegnum tíðina svo þessi stund gæti orðið að veruleika. Nú mun ég bara leggja ennþá harðar að mér. Ég hef verið það heppinn að vera hluti af mörgum sigursælum liðum og ætla að halda því áfram hjá Manchester United. Til þess að það gerist þurfum við að leggja hart að okkur en ég hef fulla trú á því að við, ásamt knattspyrnustjóranum náum því takmarki,“ sagði Martinez eftir að hafa skrifað undir 5 ára samning við Manchester United í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Aðili náinn Beckham-fjölskyldunni uppljóstrar um afstöðu Victoriu í deilunni – Spáir því að þetta gæti gerst á næstunni

Aðili náinn Beckham-fjölskyldunni uppljóstrar um afstöðu Victoriu í deilunni – Spáir því að þetta gæti gerst á næstunni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sá virti fer yfir forgangsatriði Liverpool og framtíð Salah

Sá virti fer yfir forgangsatriði Liverpool og framtíð Salah
433Sport
Í gær

Var klár í að yfirgefa Ronaldo og félaga – Tóku í handbremsuna eftir uppákomu í gær

Var klár í að yfirgefa Ronaldo og félaga – Tóku í handbremsuna eftir uppákomu í gær
433Sport
Í gær

Staðfesta andlát um helgina í yfirlýsingu – Viðstaddir brugðust hratt við en án árangurs

Staðfesta andlát um helgina í yfirlýsingu – Viðstaddir brugðust hratt við en án árangurs