fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fréttir

Gerður spurði fólk hvað það hatar og ekki stóð á svörum – „Dónalegasta fólk sem til er“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 08:00

Gerður Arinbjarnardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi Blush, er stödd erlendis í sólarfríi. Gerður er virk á samfélagsmiðlum og í gær deildi hún því að þrátt fyrir að sundlaugarsvæðið á hótelinu eigi að vera reyklaust þá hafi tvær konur sest við hlið Gerðar og báðar keðjureykt.

„Fólk sem reykir í almenningsrýmum er dónalegasta fólk sem til er. Maður er bara eitthvað að njóta og svo mætir einhver og situr….án gríns konan situr við hliðina á mér og er að blása reyknum í andlitið á mér. Nennið þið án gríns ef þið reykið að bera smá virðingu fyrir fólkinu í kringum ykkur, þetta er ógeðslegt.“

Segir Gerður að reyklaust svæði eigi að vera á öllu hótelinu, en það virðist mismunandi tekið á því af starfsfólki ef gestirnir brjóta reglurnar og reykja. Ákvað hún að færa sig og prófa annað stað.

Í kjölfarið spurði Gerður fylgjendur sína um hluti sem þeir hata.

Ekki stóð á svörum og ljóst að margir hata þegar fólk reykir við innganga og nikotínpúðana sem skildir eru eftir um allt. Þar sem Gerður er í sólinni erlendis þá komu nokkrar svör sem áttu við þar, eins og ofurfullir Bretar með öskrandi börn á sundlaugarsvæðinu. Það var þó fleira sem var nefnt:

„Þegar fólk snýtir sér við matarborðið á veitingastað.“

„Fólk í umferðinni sem kann ekki umferðarreglurnar og er bara fyrir.“

„Þegar fólk talar í símann á speaker. Hátt og með símann í botni.“

„Fullorðið fólk sem ryðst í röðum vísvitandi því það telur sig yfir aðra hafið.“

„Fólk hendir tyggjói bara á jörðina eða klínir því undir borð eða eitthvað. Ógeðslegt.“

„Treður sér í bílastæði þannig að maður kemst ekki inn í bílinn sinn.“

„Nenni ekki að pósta meira, en það er ansi margt sem fólk hatar“, skrifaði Gerður.

Gerður henti svo fram annarri spurningu: Hrós dagsins fær….og bað fylgjendur sínar að svara. „Spurning hvort fólk sé jafn viljugt að hrísa eins og að drulla.“

Hér má sjá nokkur fleiri svör um hvað fólk hatar:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum
Fréttir
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit
Fréttir
Í gær

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“
Fréttir
Í gær

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði