fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fréttir

Reyðfirðingar kvarta undan Krónunni – „Það er eins og við séum annars flokks“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúar á Reyðarfirði hafa komið að máli við DV og kvartað undan slöku vöruúrvali í verslun Krónunnar á Reyðarfirði. Framkvæmdstjóri Krónunnar segir að þetta standi til bóta.

„Við erum eins og annars flokks fólk sem fáum ekki það sama og aðrir en borgum það sama og við gerum okkur grein fyrir að auðvitað geta þau ekki haft allt vöruúrvalið hér en þau gætu haft það helsta að minnsta kosti. Ég veit að mjög margir eru þreyttir á þessu ástandi og leiðinlegt að þurfa að keyra í hálftíma í Bónus á Egilsstöðum og hálftíma til baka,“ segir einn íbúinn.

Ávextir í Krónunni á Reyðarfirði eru sagðir vera gamlir og ónýtir, of lítið sé pantað inn af algengum vörum á borð við rjóma og hakk svo selst upp á stuttum tíma, einnig séu sprittkerti alltaf uppseld.

Verslunin verður uppfærð

„Við tökum allar ábendingar alvarlega og reynum eftir fremsta megni að uppfylla væntingar viðskiptavina okkar. Við höfum til að mynda nýlega hafið heimsendingar í Fjarðabyggð við góðar undirtektir hjá bæði íbúum og fyrirtækjum en með þeirri þjónustu getur fólk pantað sér vörur alla leið upp að dyrum, alveg eins og hér á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, í svari við fyrirspurn DV um málið.

Hún segir að Krónan hafi vaxið á Austurlandi og stundum sé eftirspurn meiri en áætlað framboð:

„Við höfum verið að vaxa fyrir austan, bæði í gegnum hefðbundna verslun okkar og snjallverslun. Á köflum hefur eftirspurn verið meiri en áætlað framboð, sem getur leitt til tímabundins skorts, en við höfum reynt að bregðast hratt við þegar slíkt kemur upp. Þegar við fáum svona ábendingar þá endurskoðum við pöntunarferla og eftirlit með ferskvörum og reynum að aðlaga okkur í takt við óskir viðskiptavina. Við erum einnig með sérverkefni í gangi þar sem við erum að rýna vöruúrval í verslunum á landsbyggðinni byggt á gögnum okkar og svo sérstöku rýni frá viðskiptavinum. Með því vonumst við til að bæta upplifun þeirra viðskiptavina sem finnst við geta gert betur og fögnum að sjálfsögðu endurgjöfinni. Markmiðið er að viðskiptavinir geti treyst því að Krónan standi undir væntingum, hvort sem verslað er í búð eða með heimsendingu.

Ég er einnig spennt fyrir fyrirhugaðri uppfærslu á verslun okkar á Reyðarfirði en þessi verslun er komin til ára sinna. Það er erfitt að gefa nákvæma tímalínu en hún er ofarlega á blaði þegar kemur að endurnýjun verslana.“

Guðrún minnir á að Krónan býður heimsendingar á Austurlandi, bæði á Reyðarfirði og víðar:

„Á Reyðarfirði rekum við bæði hefðbundna verslun og bjóðum upp á heimsendingar í gegnum snjallverslun, en úrval í snjallverslun byggir á vöruúrvali verslunarinnar sjálfrar. Verslunin þarf því ávallt að standa undir bæði viðskiptavinum í búð og þeim sem panta í snjallverslun, sem saman þjónusta stóran hluta Austurlands. Krónan býður nú heimsendingar á Austurlandi til Egilsstaða, Fellabæjar, Seyðisfjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Neskaupstaðar, Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar, Breiðdalsvíkur, Mjóafjarðar og Djúpavogs, þar sem pantanir eru afgreiddar úr verslun Krónunnar á Reyðarfirði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum
Fréttir
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit
Fréttir
Í gær

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“
Fréttir
Í gær

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði