fbpx
Miðvikudagur 11.febrúar 2026
433Sport

Miðsvæðið áfram í forgangi á Old Trafford – Þessir fjórir eru á blaði

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er enn lögð mikil áhersla á það á Old Trafford að styrkja miðsvæðið, þó breytingar hafi orðið í brúnni.

Michael Carrick er tekinn við af Ruben Amorim út leiktíðina og fær það verkefni að reyna að koma Manchester United í Meistaradeildina.

The Sun segir ólíklegt að United eyði peningum til að styrkja sig í janúar en miðjan verður að öllum líkindum styrkt í sumar.

Elliot Anderson og Adam Wharton, sem hafa heillað með Nottingham Forest og Crystal Palace, eru á blaði.

Þar eru einnig Carlos Baleba, sem United reyndi að fá í sumar en hefur þó ekki átt sérstakt tímabil með Brighton í kjölfarið. Loks kemur Alex Scott hjá Bournemouth til greina.

United er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 32 stig, 3 stigum frá Meistaradeildarsæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Klopp sagður til í að taka við ef þessi skilyrði eru uppfyllt

Klopp sagður til í að taka við ef þessi skilyrði eru uppfyllt
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin – Vekur athygli að United sé ekki ofar eftir gengið undanfarið

Ofurtölvan stokkar spilin – Vekur athygli að United sé ekki ofar eftir gengið undanfarið
433Sport
Í gær

Dregið í riðla hjá landsliðinu á morgun – Fáir spennandi andstæðingar eftir fall úr B-deild

Dregið í riðla hjá landsliðinu á morgun – Fáir spennandi andstæðingar eftir fall úr B-deild
433Sport
Í gær

Telur að Besta deildin fái ekki svona góðan samning aftur – Vonar að ekki verði farið sömu leið og handboltinn

Telur að Besta deildin fái ekki svona góðan samning aftur – Vonar að ekki verði farið sömu leið og handboltinn