fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Hólmfríður ráðin skrifstofustjóri húsnæðis- og skipulagsmála hjá Innviðaráðuneytinu

Eyjan
Miðvikudaginn 1. júní 2022 14:10

Hólmfríður Bjarnadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra hefur skipað Hólmfríði Bjarnadóttur í embætti skrifstofustjóra húsnæðis- og skipulagsmála hjá innviðaráðuneytinu. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Hólmfríður var valin úr hópi margra hæfra umsækjenda að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hún mun taka við embættinu frá og með 1. júlí næstkomandi.

Hólmfríður er skipulagsfræðingur að mennt með meistaragráðu frá háskólanum í Newcastle upon Tyne og rannsóknagráðu í skipulagsfræði frá Blekinge Tekniska Högskola í Blekinge í Svíþjóð. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði skipulags-, byggðaþróunar og umhverfismála og hefur starfað hér á landi, í Svíþjóð og á alþjóðavettvangi og sinnt stjórnun, áætlanagerð og stefnumótun.

Hólmfríður starfaði sem skrifstofustjóri hjá sænska umhverfisráðuneytinu í Stokkhólmi á árunum 2009-2016 og var á þeim tíma formaður nefndar á vegum OECD í París. Hún starfaði sem verkefnastjóri hjá Nordregio í Stokkhólmi á árunum 1999 til 2006 og sem sérfræðingur hjá SKI við mat á umhverfisáhrifum í kjarnorkueftirliti í Svíþjóð á árunum 2007-2008. Hún starfaði hjá Skipulagsstofnun á Íslandi sem sérfræðingur á árunum 1996-1999 og sem sviðsstjóri umhverfissviðs Skipulagsstofnunar frá 2016-2017. Hólmfríður hefur frá því í nóvember sl. starfað sem skipulagsráðgjafi hjá Alta við ráðgjöf til fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga í skipulagsmálum. Áður starfaði hún sem umhverfis og skipulagsstjóri hjá Veitum ohf. Frá 2017 til 2021.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að