fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fréttir

Myndband: Þetta er það sem bíður kvennanna tveggja á Grikklandi eftir að þeim verður vísað frá Íslandi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 24. maí 2022 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Waage hefur hrint af stað undirskriftarsöfnun til stuðnings tveimur ungum, sómölskum konum, sem vísa á úr landi héðan á næstunni. Að sögn Gunnars verður þeim snúið aftur til Grikklands þaðan sem þær komu en þar bjuggu þær á götunni við skelfilegar aðstæður. Hætta er á því að frá Grikklandi verði þær sendar aftur til heimalands síns, Sómalíu, þar sem réttindi kvenna eru fyrir borð borin.

Konurnar heita Fatma og Nadifa. Í myndbandi hér undir fréttinni má sjá Nadifu Mohamed hafast við á götunni í Grikklandi en gatan er það sem bíður hennar verði hún send aftur til Grikklands frá Íslandi. Í stuttu samtali við DV bendir Gunnar á að myndbandið sé tekið í skaplegu veðri en aðstæður verði enn skelfilegri þegar rignir og hreyst flóttamannanna gegnblotna.

„Samkvæmt flóttamannasamningi UN höfum við ekki leyfi til að senda fólk frá okkur í þessar aðstæður,“ segir Gunnar.

Í áskorun undirskriftarsöfnunarinnar segir:

„Þær Fatma og Nadifa eru með hræðilega áfallasögu og koma frá landi þar sem einna minnst kvenréttindi gilda. Það á að vera baráttumál okkar allra að leyfa þessum fjöldabrottvísunum dómsmálaráðherra ekki fram að ganga.

Þess ber að geta að eftirfarandi aðstæður þurfa konur og stúlkur að búa við í Sómalíu:

Samkvæmt Sharia lögum er refsiramminn fyrir karla 10 ár fyrir að drepa konu sína, dóttur, systur eða móður. Ef að sýnt þykir fram á að gerandinn hafi verið í miklu ójafnvægi þá kemur það til refsilækkunar. Algengt er að engin refsing liggi við þessu.

Kona getur ekki sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, karlmenn mega aftur á móti skilja við konur sínar eftir hentisemi. Dæmi eru um barnungar konur sem eru einstæðar mæður og eiginmenn þeirra hafa losað sig við.

Við skilnað færist forsjá yfir börnum yfir til föðurfjölskyldu. Konan missir þá börnin.

Að þessu viðbættu þá stafar íbúum stöðug ógn af hryðjuverkasamtökunum Al-Shabab, en á hverjum degi eiga sér stað aftökur Sharia dómstóla og sprengjuárásir í borginni Mogadishu.“

Nánar má lesa um málið hér og leggja því lið ef lesendum hugnast svo.

Flóttamadur i Grikklandi
play-sharp-fill

Flóttamadur i Grikklandi

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum
Nova flytur á Broadway
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
Fréttir
Í gær

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann
Fréttir
Í gær

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“
Hide picture