Barnavöruverslunin Fífa tók sig til og færði hinni verðandi móður, tónlistarkonunni Guðrúnu Ýr Eyfjörð, glæsilegar gjafar sem allir foreldrar þurfa að eiga, barnavagn og bílstól. Verslunin birti færslu á Facebook-síðu sinni þess efnis og þar má sjá tónlistarkonuna, sem er betur þekkt undir listamannafninu GDRN, alsæla með gjafirnar.
Gjöfin er tilvísun í uppákomu sem átti sér stað í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpins en þar tróð GDRN upp með glæsibrag. Að loknu atriðinu kom einn af kynnum keppninnar, Jón Jónsson, til söngkonunnar og færði henni heilt fjall af sambærilegum gjöfum og vissi söngkonan, sem er góðvinkona Jóns, ekki hvaðan á hana stóð veðrið.
Síðar kom í ljós að um hrekk var að ræða og fékk tónlistarkonan því ekki að taka gjafirnar góðu heim með sér og töldu netverjar hana grátt leikna.
Nú hefur Fífa hins vegar bætt fyrir stríðni Jóns enda tekur verslunin fram að GDRN þurfi ekki að ekki að skila gjöfunum.