fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fréttir

Davíð Þór yrkir um endaþarm Páls Magnússonar

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. mars 2018 11:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, lætur ekki duga að hjóla í Útvarp Sögu og stjórnendur þar því nú hefur hann birt ljóð þar sem hann gerir grín að orðum Páls Magnússonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Páll sagði eftirminnilega á dögunum að Stundin væri „endaþarmur íslenskrar blaðamennsku“ en tilefnið var pistill Braga Páls Sigurðarsonar um landsfund Sjálfstæðisflokksins.

Ljóðið birtist á vef hljómsveitar Davíðs Þórs, Austurvígstöðvunum. Ljóðið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Sá sem nefnir sannleikann,“

segir hann

og af hneykslan sárri bærist barmur,

„er blaðamennsku endaþarmur.“

Breiðum yfir, bælum, lokum

byrgjum inni, sveipum þokum

að frjálshyggjunnar fúla hít

er full af skít.

 

„Sá sem glæpum greinir frá,“

hann grenjar þá

og af fögrum tárum flóir hvarmur,

„er fjölmiðlanna endaþarmur.“

Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.

 

„Óvinur míns eðla flokks,“

hann emjar loks

og nú blasir við hans bitri harmur,

„er blaðamennsku endaþarmur.“

Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.

 

Endaþarminn óttast hann

sem opnast kann

og sýna öllum innihaldið

sem okkur leyna reynir valdið.

Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.

 

Okkur birtist eðlið sanna

auðmannanna

og um stund var lítill stauli og garmur

stjórnmálanna endaþarmur.

Breiðum yfir, bælum, lokum … o.s.frv.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir
Fréttir
Í gær

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Í gær

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“
Fréttir
Í gær

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“