fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Geðþekkur augnlæknir

Egill Helgason
Þriðjudaginn 27. mars 2018 19:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hann er margvíslegur lággróðurinn á alnetinu og margt gert til að villa um fyrir fólki og rugla umræðuna. Hér er til dæmis vefsvæði á Facebook sem nefnist Stríðið í Miðausturlöndum. Á þriðja þúsund manns fylgist með þessu og sumir gera það örugglega í góðri trú. Ég sé að 84 Facebook- vinir mínir eru í hópnum sem líkar síðan.

Þetta eru sömu aðilar og hafa beitt sér fyrir því að þýða bók sem nefnist Stríðið gegn Sýrlandi eftir ástralskan furðufugl, Tim Anderson að nafni, en hann gefur sig út fyrir að vera sérfræðing um stríðið í Sýrlandi. Anderson er samherji Vanessu Beeley sem kom hér á dögunum og hélt erindi á vegum Ögmundar Jónassonar. Þarna eru margir einstaklingar yst af vinstri væng stjórnmálanna.

Þau tvö bar á góma í þættinum Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut um daginn. Þá sagði Ólöf Ragnarsdóttir sem hefur kennt arabísku og sögu Sýrlands við Háskóla Íslands:

Svo það komi fram tekur enginn fræðimaður mark á þessari konu og bókinni sem var verið að þýða á íslensku, það tekur enginn mark á þeim og veit enginn hver hann er.

En það er margt sérkennilegt á þessum vef. Jú, kannski er inn á milli hægt að finna eitthvað sem vitglóra er í. Þarna kemur fram stuðningur við Kúrda til að mynda. En svo kemur svona furðuspuni þar sem Bashar al Assad, fjöldamorðinginn sem situr í stóli Sýrlandsforseta, er kallaður „geðþekkur augnlæknir“.

Kæmi kannski ekki að sök ef svo margt fólk sem er að leita upplýsinga væri ekki að fylgjast með þessu. Þarna er alið á því sem var fjallað um hér í pistli um daginn og kallast upplýsingaóreiða.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum