fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Sif lætur frelsissinnana heyra það og sendir þeim mikilvæg skilaboð – „Ekki aðeins sóttvarnaaðgerðir sem skerða frelsi á tímum Covid“

Heimir Hannesson
Laugardaginn 24. júlí 2021 15:45

Sif Sigmarsdóttir rithöfundur Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú þegar margir syrgja Verslunarmannahelgina sína, kveðja Þjóðhátíðarmiðana sína og pakka útilegustólunum og pollagöllunum aftur í kassa uppi á háalofti eru aðrir sem fagna takmörkununum og hafa fyrir því ýmsar ástæður. Höfundurinn Sif Sigmarsdóttir bendir á þetta í pistli sínum í Fréttablaðinu í morgun. Þar gerir hún stólpagrín að „frelsisdeginum“ svokallaða í Bretlandi og segir frelsi eins oft traðka á réttindum annars.

„Ný bylgja Covid varpar skugga yfir íslenskt samfélag. Vissir ráðherrar innan ríkisstjórnarinnar hafa þó látið í ljós efasemdir um að rök séu fyrir sóttvarnaraðgerðum,“ skrifar Sif.

„Óvissan er sannarlega mikil. Hvaða áhrif hafa bólusetningar á sjúkdóminn og útbreiðslu hans? Er raunveruleg hætta á að heilbrigðiskerfið kikni undan álagi? Eitt er þó engum vafa undirorpið: Þeir sem láta í veðri vaka að valið standi milli fangelsis sóttvarnaraðgerða annars vegar og almenns frelsis hins vegar fara með fleipur,“ segir hún jafnframt og er ekki að skafa af því.

Síðastliðinn mánudagur var svo kallaður „frelsisdagur“ hér á Englandi þar sem ég bý. Þann dag var þeim fáu sóttvarnareglum sem enn voru við lýði aflétt. Boris Johnson forsætisráðherra hafði búið sig undir að marka tímamótin með ræðu í anda ræðu Churchill við sigur í heimsstyrjöldinni síðari. Háleit áformin féllu hins vegar um sjálf sig þegar í ljós kom að frelsið leit öðruvísi út en hann hafði ímyndað sér.

Þótt bólusetningarátak Bretlands sé með þeim best heppnuðu í heimi hefur nýgengi Covid-smita aukist á ógnarhraða síðustu vikur. Í aðdraganda „frelsisdagsins“ hvöttu 1.200 vísindamenn stjórnvöld til að fresta afnámi sóttvarna sem þeir sögðu „siðlausa tilraun“. Skoðanakönnun sýndi að almenningur var sammála. En Boris sat við sinn keip.

Rifjar Sif þá upp að þegar „frelsisdagurinn“ rann loks upp var Boris kominn í sóttkví auk fjármálaráðherra hans. Það sem vandræðalegra var fyrir forsætisráðherrann, og yfirvofandi frelsishátíð, var að nýi heilbrigðisráðherrann var kominn með Covid. Forveri hans í embætti hafði þá nýverið sagt af sér vegna sóttvarnalagabrots.

Sama dag voru milljón börn frá skóla vegna Covid-smita sem komið höfðu upp í sóttvarnarhólfum. Starfsfólk á almennum vinnumarkaði var í auknum mæli veikt eða hafði verið skikkað í sóttkví. Fyrirtæki lokuðu vegna skorts á vinnuafli; verksmiðjur, veitingastaðir. Hillur stórmarkaða stóðu tómar. Spítalar þurftu að aflýsa skurðaðgerðum.

Leikhúsfrömuðurinn Andrew Lloyd Webber barðist hart gegn sóttvörnum í faraldrinum og hótaði að fara í mál við stjórnvöld fengi hann ekki að setja á svið nýjasta söngleik sinn, Öskubusku, fyrir fullu húsi. Draumur Lloyd Webber um frelsi undan höftum hafði ekki fyrr ræst en draumurinn breyttist í martröð. Einn leikaranna í Öskubusku veiktist af Covid svo að fresta þurfti langþráðri frumsýningunni sem fara átti fram á „frelsisdaginn.“

Sif bendir í þessu ljósi á að það séu ekki aðeins sóttvarnaraðgerðir sem skerða frelsi á tímum Covid.

Frelsi Andrew Lloyd Webber til að fylla leikhús af fólki skerðir frelsi barna til órofinnar skólagöngu. Frelsi mitt til að fljúga til Íslands frá London, helstu gróðrarstíu Delta-afbrigðisins í Evrópu, skerðir frelsi barnshafandi kvenna á Íslandi, sem flestar eru óbólusettar, til að fara í Krónuna að kaupa í matinn. Útbreidd kórónaveirusmit valda veikindum og skerða þannig frelsi fólks til að afla sér lífsviðurværis. Tómar hillur verslana skerða frelsi okkar til að kaupa humar og hvítvín á sunnudögum sem og á öðrum dögum.

„Englendingar endurheimtu frelsi sitt í vikunni,“ skrifar hún áfram. „Engu að síður búa margir við meiri höft nú en fyrir „frelsisdaginn“.“

Fátt er mikilvægara en að vera á varðbergi gagnvart stjórnvöldum er þau skerða frelsi borgaranna. Staðreyndin er hins vegar sú að á tímum heimsfaraldurs er frelsið jafnvægislist. Hvort vegur þyngra: Óhindrað streymi ferðamanna um landamæri eða hindrunarlaust skólastarf í haust? Grímulaus verslunarleiðangur eða gestagangur á öldrunarheimilum? Þeir sem láta eins og hægt sé að komast hjá því að forgangsraða frelsi fólks á tímum Covid eru að blekkja sjálfa sig – eða aðra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum