fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Segja að bardagaklárum kjarnorkuvopnum fari sífellt fjölgandi

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 14. júní 2021 07:50

Kjarnorkusprengja. Mynd:Wikimedia Commons.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að kjarnorkuvopnum hafi fækkað í heildina á heimsvísu þá hefur bardagaklárum kjarnorkuvopnum fjölgað.  Þetta segir hugveitan Stockholm International Peace Research Institute (Sipri).

Í nýrri ársskýrslu hugveitunnar kemur fram að nú séu til 3.825 bardagaklárir kjarnaoddar í heiminum og fjölgaði þeim um 105 á milli ára. Í fréttatilkynningu frá hugveitunni er haft eftir Hans M. Kristensen, sem starfar hjá Sipri, að þetta sé mikið áhyggjuefni.

Sipri telur að nú séu til 13.080 kjarnorkuvopn í heiminum og hefur þeim fækkað um 320 á milli ára. 90% af þessum vopnum tilheyra Bandaríkjunum og Rússlandi en restin skiptist á milli Kína, Frakklands, Bretlands, Pakistan, Indlands, Ísraels og Norður-Kóreu.

Af þeim 3.825 kjarnaoddum sem eru bardagaklárir eru um 2.000 tilbúnir til notkunar með nokkurra mínútna fyrirvara að mati Sipri.

Auk þess að bardagaklárum kjarnorkuvopnum hafi fjölgað þá hafa kjarnorkuveldi heimsins fundið hjá sér þörf að undanförnu til að nútímavæða kjarnorkuvopnabúr sín og virðast þau leggja meiri áherslu á þau núna í hernaðaráætlunum sínum að mati Sipri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér