Líkt og greint var frá í gær vann Íslendingur 1.2 milljarð í Vikingalottó, en það er stærsti lottóvinningur Íslandssögunnar. Fram kom að vinningshafinn væri fjölskyldufaðir á fertugsaldri sem býr á höfuðborgarsvæðinu.
Eflaust eru flestir sammála um að 1.2 milljarður sé mjög há upphæð, og líklega velta margir því fyrir sér hvað hægt væri að gera við slíka upphæð. Hér að neðan má lesa nokkrar uppástungur, en DV tók saman nokkra hluti sem væri hægt að gera við þessar risastóru upphæð.
Sá sem vann í Víkingalottóinu gæti keypt 5 dýrustu fasteignirnar á fasteignavef Fréttablaðsins og samt átt sextíu miljónir í afgang. Sett verð á umræddum eignum er á bilinu 205 til 265 miljónir.
Verði vinningshafinn svangur gæti hann keypt sér meira en 700.000 pizzur á megaviku-tilboði Dominos, en tilboðið er á 1690 krónur.
Ef sá sem vann vinningin stóra myndi leyfa sér að eyða einni milljón á mánuði þangað til sjóðurinn væri búinn, myndi hann verða uppiskroppa eftir hundrað ár.
Flugmiðinn frá Reykjavík til Kaupmannahafnar virðist almennt kosta 39.875 krónur næstu daga hjá Icelandair. Vinningshafinn gæti keypt 30.000 flugmiða á því verði, langaði honum til útlanda.
Kannski er sá heppni líka óheppinn og á það til að missa símann sinn í jörðina og eyðileggja hann. Hann myndi því fara í Macland til að kaupa sér nýjan Iphone. En ef hann myndi vilja dýrustu týpuna, Iphone 12 Pro Max með 512GB minni, sem kostar 279.990 krónur, þá gæti hann keypt sér 4.300 stykki.
Yrði vinningshafanum kalt gæti hann farið og keypt sér úlpu frá 66°Norður. Úlpan Dyngja kostar 62.000 krónur, þannig hann gæti keypt 19.000 úlpur.
Myndi þeim heppna fara að leiðast gæti hann keypt sér áskrift að Netflix. Þessa dagana kostar fjölskylduáskriftin þar 1840 krónur, en vinningshafinn gæti verið áskrifandi í 1786 ár.