fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Hagnýtar upplýsingar fyrir gosáhugafólk – Svæðið er hættulegt og fólk skal klæða sig eftir veðri

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 9. apríl 2021 12:57

Frá gossvæðinu í Geldingadal. Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir sem ætla sér inn á gossvæðið við Fagradalsfjall fyrir kl. 12 á morgun og á sunnudag gera það á eigin ábyrgð.  Svæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða.  Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum.   Gert er ráð fyrir því að bannsvæði við eldstöðvarnar verði markað á korti sem verður birt síðar í dag. Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 

Þar er ennfremur ítrekað að svæðið sé ekki fyrir lítil börn, þau séu viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því útsettari fyrir skaðlegum lofttegundum.

Veðurlýsing fyrir daginn í dag:

Fremur hæg norðlæg átt í fyrstu, en síðan norðvestan átt um 8-13 m/s.  Skammvinn vestanátt með snjókomu milli kl. 15 og 18. Hæg breytileg átt í kvöld og líkur á stöku éljum, en þurrt í nótt. Frost 0 til 3 stig.

Gasmengunin ætti fyrst að fara til suðurs og síðar suðvesturs og ekki líkur á mengun í byggð. Í kvöld er aftur á móti hæg breytileg átt og líkur á að gas safnist upp við gosstöðvarnar.

Laugardagur:

Gossvæðið verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 á morgun til kl. 24.  Lokað verður inn á svæðið kl. 21.   Rýming hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti.

Veðurlýsing fyrir laugardag:

Hæg suðlæg eða suðvestlæg átt og þurrt. Hægt vaxandi vindur þegar líður á daginn, S og síðar SV 8-13 m/s síðdegis með éljum.  Hiti kringum frostmark. Gasmengun berst einkum til norðurs og norðausturs og gæti borist að Vogum og til Höfuðborgarsvæðisins.

Sunnudagur:

Gossvæðið verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 á morgun til kl. 24.  Lokað verður inn á svæðið kl. 21.   Rýming hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti.

 

Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.

  • Gasmengun við gosstöðvarnar getur alltaf farið yfir hættumörk, mökkurinn leggst undan vindi og því öruggast að horfa til eldstöðva með vindinn í bakið.
  • Í hægviðri (<5 m/s) getur gas safnast fyrir í dalnum, þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar, allan hringinn í kringum gosstöðvarnar. Í slíkum tilfellum þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi en ekki halda sig í brekkunum fyrir ofan.
  • Velja þarf gönguleið eftir vindaspá hverju sinni
  • Forðast skal að taka hunda með sér að gosstöðvunum. Hundar eru útsettari fyrir mengun vegna gass þar sem þeir eru nær jörðu. Einnig getur flúor leynst í pollum sem hundar drekka úr.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“