fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
FókusKynning

Mexíkósk matargerð á Taqueria

Kynning

Byrjaði sem matvagn sem Grapevine valdi sem besta matvagninn árið 2015

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. janúar 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Taqueria leggur áherslu á ferska mexíkóska matargerð sem er sönn uppruna sínum. Hallberg Hallbergsson, rekstrarstjóri staðarins, segir að matseðillinn sé einfaldur og ekki það stór en bjóði upp á vegan valkost. Eigandi staðarins, Jón Pálmar Sigurðsson, opnaði staðinn haustið 2015 sem er í Ármúla 21 í Reykjavík.

Staðurinn varð til út frá matarvagni

„Hugmyndin að staðnum kom með Taqueria-vagninum sem var einmitt stofnaður fyrir ári síðan og var í portinu fyrir utan Dubliners & Paloma í miðbænum,“ segir Hallberg. „En gaman er að segja frá því að Grapevine-tímaritið valdi vagninn sem besta matarvagninn árið 2015,“ bætir hann við.

Mexíkósk matargerð

Hallberg segir áherslur staðarins vera mexíkóska matargerð og nefnir hvað sósurnar og nachosið hjá þeim sé vinsælt en allt sé gert á staðnum. „Taqueria er tilvalinn staður fyrir hópa og bjóðum við upp á „happy hour“ þar sem við erum með vínveitingaleyfi og því er afar hentugt að byrja kvöldið hjá okkur ef planið er að halda svo í bæinn seinna um kvöldið, svona ef maður er ekki bara að fá sér hádegismat,“ segir Hallberg. Taqueria er opinn mánudaga til laugardags frá kl. 11.00 til 21.00.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
10.04.2025

Vorið er komið á Boozt – Endurnýjaðu fataskápinn og heimilið fyrir nýja árstíð!

Vorið er komið á Boozt – Endurnýjaðu fataskápinn og heimilið fyrir nýja árstíð!
Kynning
31.01.2025

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ