fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Steingrímur J. kveður brátt – Vinstri græn standa á krossgötum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. nóvember 2020 21:00

Steingrímur J. Sigfússon

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnmálaþróun á vinstri vængnum hefði án efa orðið allt önnur ef Steingrímur hefði náð kjöri sem formaður Alþýðubandalagsins 1995. Vinstri græn standa á krossgötum.

Í pistli hér í blaðinu í sumar sem leið gat ég þess að fólk í Norðausturkjördæmi hefði lítið orðið vart við Steingrím J. Sigfússon, oddvita VG, í kjördæminu, undanfarin misseri og það var tekið til marks um að hann hygðist ekki gefa kost á sér á nýjan leik. Það kom því fáum á óvart þegar Steingrímur tilkynnti á laugardaginn var að hann ætlaði að hætta í stjórnmálum.

Margir velta fyrir sér mögulegum arftaka. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir situr í öðru sæti lista flokksins í kjördæminu og aðspurðir telja hana líklegan arftaka. Sumir heimildarmanna nefna einnig Björn Val Gíslason skipstjóra en hann var þingmaður VG í kjördæminu 2009–2013.

Vinstra Framsóknarfólk

Þrátt fyrir langa þingsetu er Steingrímur ekki ýkja gamall, fæddur 4. ágúst 1955, á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, kominn af „vinstra Framsóknarfólki“ eins og hann orðar það sjálfur, fólki sem studdi vinstristjórnina sem Ólafur Jóhannesson myndaði 1971 en sú stjórn hafði brottför varnarliðsins á sinni stefnuskrá og umfangsmikil ríkisafskipti, ekki hvað síst í byggðamálum.

Steingrímur lauk landsprófi frá Héraðsskólanum á Laugum og síðar stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Á þeim árum mótuðust pólitískar skoðanir hans enn frekar. Hann dvaldi sem skiptinemi á Nýja-Sjálandi og sagði eitt sinn frá því í viðtali að þar hefði hann kynnst „ágætum sósíalistum“. Steingrímur nam jarðfræði við Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í þeirri grein 1981. Og kominn til Reykjavíkur fylkti hann liði með róttækum stúdentum og andstæðingum varnarliðsins.

Beint úr sjónvarpinu á þing

Árið 1978, þegar Steingrímur var á fyrsta ári í Háskólanum, hringdi Stefán Jónsson, alþingismaður Alþýðubandalagsins, til hans og kvaðst vilja eiga við hann orð, en Stefán var þá oddviti flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. Erindi Stefáns var að bjóða Steingrími fjórða sæti á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Það varð úr og aftur var Steingrímur í framboði í alþingiskosningunum árið eftir.

Steingrímur starfaði að loknu BS-prófi hjá Hafrannsóknastofnun en ekki leið á löngu þar til hann var ráðinn íþróttafréttamaður á Ríkissjónvarpinu. Þar varð hann landsfrægur, ekki hvað síst fyrir nýstárleg efnistök, en hann lét sig varða keppnir í íþróttum sem þá var lítið fjallað um í fréttum, svo sem hestaíþróttum. En Steingrímur staldraði aðeins stutt við í sjónvarpinu því árið 1983 var hann valinn til að skipa efsta sæti á lista Alþýðubandalagsins á Norðurlandi eystra.

Þingmenn eldast illa

Steingrímur hafði ekki setið á þingi lengi þegar viðtal birtist við hann í Helgarpóstinum þar sem hann sagði meðal annars að sér fyndist „þingmenn vera fljótir að verða gamlir og þreyttir. Þeir eldast illa. Þetta er ég mest smeykur við, og ég vona, að þingmennskan breyti mér ekki á þennan hátt.“

Nýir vindar blésu um þingsali en Steingrímur amaðist meðal annars við því að þingmenn þyrftu að vera í jakkafötum og með bindi á þingfundum. Frami Steingríms varð skjótur og árið 1988 varð hann landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í vinstristjórn Steingríms Hermannssonar. Hann beitti sér meðal annars fyrir stórauknum niðurgreiðslum til landbúnaðar og setti flugvelli út um landið á oddinn.

Erfðaprinsinn

Steingrímur var lengi álitinn erfðaprinsinn í Alþýðubandalaginu en þar var við lýði sú regla að enginn mátti sitja lengur sem formaður en átta ár. Þegar hyllti undir lok formannstíðar Ólafs Ragnars Grímssonar blasti við að Steingrímur tæki við. Ýmsu flokksfólki þótti þó nóg um völd þess fámenna hóps sem öllu hafði stýrt og úr varð að Margrét Frímannsdóttir gaf kost á sér til formennsku og sigraði Steingrím með 53,5% atkvæða. Margrét hafði hug á sameiningu vinstriflokkanna og til varð þingflokkur Samfylkingarinnar árið 1998.

Vinstri græn

Ýmsum róttækum vinstrimönnum mislíkaði sameiningin og þeir stofnuðu nýjan flokk, Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Þetta flokksbrot úr Alþýðubandalaginu bauð fyrst fram árið 1999 með Steingrím J. Sigfússon í broddi fylkingar. Ætla má að saga íslenskrar vinstrihreyfingar hefði orðið allt önnur hefði Steingrímur náð kjöri í formannskosningunum 1995.

Vinstri grænum hafði vaxið fiskur um hrygg er nær dró alþingiskosningunum 2007, fylgið fór úr 8,8% í 14,3%. Þingmennirnir urðu níu en voru áður fimm. Það var svo loks 1. febrúar 2009 sem flokkurinn komst í ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur. Steingrímur var fjármálaráðherra á árunum 2009–2011 og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra 2011–2012. Þá var hann atvinnu- og nýsköpunarráðherra 2012–2013. Það var engu líkara en hann hefði alla þræði í hendi sér í þeirri stjórn.

VG á krossgötum

Um miðjan febrúar 2013, þegar nær dró kosningum, sýndu kannanir að stefndi í fylgishrun VG. Þá boðaði Steingrímur til blaðamannafundar og tilkynnti að hann myndi láta af formennsku á næsta flokksþingi. Katrín Jakobsdóttir tók við og Steingrímur lét lítið fyrir sér fara í kosningabaráttunni. Alls töpuðu Samfylkingin og VG 28% atkvæða frá kosningunum 2009 og aldrei áður höfðu stjórnarflokkar misst viðlíka fylgi.

Tilkynningin um brotthvarf Steingríms úr stjórnmálum nú þarf ekki að koma neinum á óvart. Síðustu áratugi hefur embætti forseta Alþingis verið flestum endastöð á pólitískum ferli og Steingrímur að mestu kosið undanfarið að halda sig utan við helstu átakamálin. Og segja má að flokkurinn standi á krossgötum nú þegar Steingrímur hverfur af sviðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum