fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

„Þetta er eitthvað sem marga vantar“

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 20. september 2020 15:00

Mynd: Fréttablaðið/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigendur Spilavina, vinkonurnar Svanhildur Eva Stefánsdóttir og Linda Rós Ragnarsdóttir, stofnuðu verslunina árið 2007, rétt áður en kreppan skall á. Það á því vel við að þær stofni næsta anga af starfseminni í miðjum faraldri. Nýlega opnuðu þær kaffihúsið Spilakaffi í versluninni í Skeifunni ásamt Eðvarði Arnóri Sigurðarsyni og Þorláki Lúðvíkssyni, en þar getur fólk fengið sér kaffibolla, kruðerí, mat og bjór á meðan það spilar.

„Við vorum bara búin að ákveða þetta fyrir löngu. Kaffihús og Spilavinir er svo fullkomið samband. Þetta er búið að vera í vinnslu í langan tíma og núna erum við loks búin að opna,“ segir Þorlákur.

Lífið heldur áfram

„Leyfin komu akkúrat í miðjum faraldrinum, við vorum búin að sækja um þetta fyrir COVID og þá vorum við náttúrulega ekkert að fara að láta það stoppa okkur. Jú, það er faraldur í gangi en lífið heldur áfram, við verðum að halda áfram,“ segir Svanhildur og bendir á mikilvægi þess að fólk eyði tíma saman.

„Við vildum ekki gefast upp og sleppa því að opna vegna faraldursins, heldur vildum við frekar breyta vinnureglum og haga okkur öðruvísi. Það er eitthvað sem við erum góð í að gera, við erum góð í að laga okkur að aðstæðunum.“

Eitthvað sem marga vantar

Svanhildur segir að í Spilavinum hafi alltaf verið hlustað á óskir viðskiptavina verslunarinnar. Þaðan kom bæði hugmyndin og einnig þrýstingurinn á að opna kaffihús í versluninni. „Það að hafa pláss til að hitta vini sína og spila — það hafa ekki allir aðstöðu til að bjóða heim til sín — og geta jafnvel fengið sér eitthvað með því, veitingar, bjór eða kaffi, þetta er eitthvað sem marga vantar,“ segir Þorlákur. Einnig er vinsælt að halda barnaafmæli á staðnum, en á neðri hæðinni er hálfgerð ævintýraveröld fyrir spilakát börn.

Á kaffihúsinu er boðið upp á afar heimilislegt umhverfi og er spilasvæðinu á neðri hæðinni skipt í nokkrar stofur. „Þegar maður situr í stofunni líður manni frekar eins og maður sé staddur í heimsókn hjá einhverjum, frekar en inni í verslun eða á kaffihúsi,“ sagði gestur á staðnum þegar DV bar að garði.

Margir mismunandi hópar hafa haft samband við Spilakaffi og fengið að koma. „Roleplay-hópar, vinkonuhópar, starfsmannahópar og prjónahópar hafa verið að koma til okkar. Þetta er góður vettvangur til að vera út af fyrir sig í stofu saman,“ segir Svanhildur og hvetur hópa af öllu tagi að heyra í þeim og koma til þeirra.

Eitt stærsta spilasafn landsins og gott bjórúrval

Það sem Spilakaffi hefur upp á að bjóða, annað en veitingar og drykki, er aðgangur að einu stærsta spilasafni landsins. „Fyrir suma er það mikill kostnaður að kaupa sér stórt spil og hérna gefst fólki kostur á að spila spilin, án þess að kaupa þau.“

Spilakaffi býður þó ekki aðeins upp á mikið úrval af spilum, úrvalið af bjór er ekki síðra. „Við erum nördar og vildum vera með bjóra frá litlum brugghúsum. Þess vegna erum við líka með spennandi úrval af góðum íslenskum bjórum.“

Spilavinir hafa haldið opin spilakvöld í versluninni undanfarin 13 ár. „Hér kynnist fólk sem deilir sama áhugamáli. Það myndast ákveðin menning og stemning í kringum það. Fólk getur komið hingað einsamalt og hitt aðra sem hafa sama áhugamál. Það hefur mikill vinskapur myndast hér og spilahópar orðið til.“

Spilakvöldin hafa verið haldin reglulega en þó hefur alltaf liðið einhver tími á milli, vika eða tvær. Með opnuninni á Spilakaffi getur fólk hist og spilað saman alla daga vikunnar. „Það er hægt að spila og fá léttar veitingar. Þá er líka hægt að fá aðstoð við spilið, kannski vantar bara dómara og ég kem oft á borðin til að skera úr um hvað er rétt og hvað er rangt í spilinu.“

Margir viðburðir fram undan

Á döfinni er að halda viðburði á kaffihúsinu. „COVID hafði talsverð áhrif á það hvernig maður getur haldið viðburði. Við höfum þó verið að finna leiðir til þess að vinna með þeim reglum sem sóttvarnalæknir setur og hanna og hugsa spilaviðburði innan þess,“ segir Þorlákur.

„Það eru margir viðburðir fram undan hjá okkur, það eru þemaspilakvöld, tveggja manna spilakvöld, PubQuiz í alls konar flokkum, svo munum við halda mót og halda kennslu í spilunum fyrir mótið,“ segir Svanhildur en þess má geta að undanfarin ár hefur Íslandsmeistaramótið í Carcassonne verið haldið á vegum Spilavina. Sigurvegari mótsins fær síðan keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í spilinu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Fókus
Fyrir 2 dögum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun