fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Þú leggur til húsnæðið – Leigutekjur sjá um allt annað

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 16. desember 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Leigutekjur, Ármúla 4, veitir heildarþjónustu til þeirra sem vilja leigja út frá sér húsnæði sitt til ferðamanna. Töluverð vinna fylgir slíkri umsýslu, finna leigjendur, þrífa og skipta um á rúmum á milli leigjenda og svo framvegis. „Auk þess er það þannig að ef þú ert að fara í tveggja vikna utanlandsferð og ætlar að leigja út íbúðina eða húsið þitt til ferðamanna á meðan, þá er ekki auðvelt fyrir þig að taka á móti gestunum og standa í þrifum og að búa um rúm og þess háttar,“ segir Böðvar Rafn Reynisson hjá Leigutekjum en hann rekur fyrirtækið með Jórunni Steinsson.

„Við tökum við lyklunum og sjáum um allan pakkann á meðan þú ert í fríi erlendis eða úti á landi. Við sjáum um allt ferlið frá upphafi til enda, komum á staðinn, tökum ljósmyndir og skráum eignina. Við sjáum um öll samskipti við ferðamennina, tökum á móti þeim og skiptum á rúmum og þrífum á milli gesta. Þetta er heildarþjónusta,“ segir Böðvar og þarf sá sem vill leigja út frá sér í raun ekki að gera annað en hafa samband við Leigutekjur.

Samkvæmt lögum hafa allir að uppfylltum einföldum skilyrðum heimild til að leigja út húsnæði sitt í 90 daga á ári eða fyrir 2 milljónir króna. Ef útleigan fer yfir þau mörk þarf að sækja um gistiheimilaleyfi. „Þó ber að sækja um leyfi hjá sýslumanni fyrir heimagistingu sem er einfalt í sniðum og kostar bara nokkur þúsund á ári, en við getum einnig aðstoðað við þá umsókn. “ segir Böðvar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Leigutekjur vanda sig mjög við að finna góða og trausta leigjendur: „Við gerum okkur far um að finna trausta og góða leigjendur en ferðamenn fá einkunnir í einkunnakerfi Airbnb, sem er mikilvægur upplýsingabanki fyrir okkur. Ferðamaður fær t.a.m. ekki fimm stjörnu einkunn nema að hann sé fyrrirmyndarleigjandi.“

Allir þeir sem hafa áhuga á því að leigja húsnæði sitt til ferðamanna og næla sér þannig í drjúgar aukatekjur með þægilegum hætti án fyrirhafnar og streitu ættu að hafa samband við Leigutekjur í síma 519 8484 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið leigutekjur@leigutekjur.is.

Böðvar og Jórunn reka einnig fyrirtækið Itravel.is þar sem íslenskir sem erlendir ferðamenn geta bókað hina ýmsu afþreyingu og ferðir, en þau bjóða einnig erlendum ferðamönnum upp á heildarpakka í Íslandsferðum og eru því í miklum samskiptum við erlenda ferðamenn. Vinna starfsemi Itrvel og Leigutekna því vel saman. Böðvar segist finna fyrir mikilli eftirspurn eftir Airbnb gistingu núna yfir hátíðirnar og því er þetta góður tími til að leigja út frá sér.

Nánari upplýsingar um Leigutekjur er að finna á heimasíðunni leigutekjur.is og heimasíða Itravel er itravel.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum