fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

Fyrir marga er draumavinnuaðstaðan hér

Kynning

Þrjár skrifstofur lausar hjá 14Skrifstofum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 3. nóvember 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er hægt að hugsa sér betri vinnuaðstöðu en stóra og bjarta skrifstofu á góðum stað í Hafnarfirði með háhraða internetengingu, kaffistofu, fundarherbergi, góðri salernisaðstöðu og sturtu? Og allt saman á hagstæðu verði.

Fyrirtækið 14Skrifstofur býður 14 nýstandsettar skrifstofur að Trönuhrauni 1 í Hafnarfirði, í vinalegu hverfi rétt fyrir utan miðbæinn. Stutt er í allt, svo sem fjölda veitingastaða allt í kring og alla aðra þjónustu í næsta nágrenni.

Leigan er mjög hagstæð og allt innifalið: hiti, rafmagn, háhraða internet, aðgangur að sameiginlegri kaffistofu og fundarherbergi, sem og salerni og sturtu. Allir leigjendur hafa aðgang að staðnum allan sólarhringinn og rýmið er vaktað með myndavélakerfi.

Leigufyrirkomulag einkennist af sveigjanleika. Bæði skammtímaleiga og langtímaleiga standa til boða. Á þeim tíma sem skrifstofurnar hafa verið til leigu, þ.e. síðasta hálfa árið, hafa sumir tekið skrifstofu á leigu í aðeins einn mánuð og eru þar dæmi um fólk að ljúka við lokaverkefni í háskóla sem hefur vantað næði í stuttan tíma. Aðrir hafa verið allan tímann og sýna ekki á sér fararsnið. Í augnablikinu eru þrjár skrifstofur lausar.

Eigendur að 14Skrifstofum eru þeir Guðjón Pétur Lýðsson og Kári Ársælsson en Brynja Guðmundsdóttir hefur einnig unnið með þeim að þessari uppbyggingu. Fyrirtækið er rekið með hagkvæmum hætti og er laust við yfirbyggingu. Þannig tekst að halda leiguverðinu niðri:

„Ég held að þetta sé með hagstæðara skrifstofuhúsnæði sem fyrirfinnst á höfuðborgarsvæðinu og fólk er auk þess mjög hrifið af mikilli lofthæð og þægilegu andrúmlofti. Þess má geta að það er mikill kostur að vera með aðstöðu í Hafnarfirði og keyra alltaf á morgnana og seinnipartinn á móti umferð en sitja ekki fastur í umferðinni,“ segir Guðjón Pétur Lýðsson en hann telur að auk hagkvæms rekstrar séu eigendur fyrirtækisins einfaldlega að leggja kapp við að hafa þarfir viðskiptavinanna að leiðarljósi en að eyða ekki í óþarfa og ná þannig að halda verðinu í lágmarki.

„Við byrjuðum að leigja út fyrir hálfu ári en við keyptum húsið fyrir tveimur árum,“ segir Guðjón, en eigendurnir hafa lagt í þetta eigið sparifé, meðal annars fjármagn sem Kári og Guðjón náðu að búa til með hagstæðum fasteignaviðskiptum.

Vinnan við að gera upp húsnæðið var einnig að mestu í höndum þeirra og góðra vina auk þess sem góðir verktakar komu einnig að þessu: „Ég lærði húsasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík þó svo ég eigi eftir að klára sveinsprófið. Og maður er mikið búinn að þræla og djöflast í þessu síðustu tvö árin en allt hefur þetta gengið vel upp,“ segir Guðjón.

Sem fyrr segir eru þrjár skrifstofur lausar í Trönuhrauni í augnablikinu en fjölbreyttur hópur leigjenda er fyrir í húsinu:

„Þetta er alls konar starfsemi. Hér er til dæmis forritari og hér er fyrirtækið Green Key sem sérhæfir sig í Airbnb-gistiþjónustu. Síðan er hér tryggingasali og verktaki sem er hérna með skrifstofu til að hafa yfirsýn yfir öll verkefnin sín. Þá er hér til dæmis hérna aðili með MINI cardþjónustu, en það eru afsláttarkort fyrir ferðamenn.“

Guðjón segir leigjendur kunna vel að meta félagsskapinn auk þess sem þetta fyrirkomulag gefi fólki úr ólíkum starfsgreinum tækifæri til að vinna saman.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni www.14skrifstofur.is og þar er hægt að setja inn fyrirspurnir, t.d. fyrir þá sem hafa áhuga á að leigja sér skrifstofu, og er þeim svarað hratt og örugglega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum