fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024

Bachelor stjarna sagði „n-orðið“ í beinni útsendingu

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 18. maí 2020 13:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bachelor stjarnan Hannah Brown hefur vakið úlfúð fyrir rasísk ummæli sín í beinni útsendingu á Instagram. Hannah sagði „n-orðið“ (e. n-word) á meðan hún söng lagið Rockstar með DaBaby.

Um leið og Hannah lét ummælin falla fékk hún óteljandi skilaboð sem bentu henni á hvað hún hafði sagt. Hannah baðst strax afsökunar en sagðist seinna ekki vera viss um að þetta hafi verið hún sem sagði orðið. E! News greinir frá.

„Ég held að ég hafi ekki sagt þetta orð […] Ég myndi aldrei nota þetta orð. Ég myndi aldrei kalla neinn þetta. Við segjum ekki þetta orð,“ segir hún og telur að bróðir sinn hafi sagt orðið, en ekki hún.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá þegar hún syngur lagið og segir n-orðið.

Nokkrar Bachelor-stjörnur hafa stigið fram og gagnrýnt Hönnuh, sem tjáði sig aftur um málið í gærkvöldi á Instagram.

„Ég skulda ykkur öllum risastóra afsökunarbeiðni […] Ég gengst við ábyrgðinni og mér þykir þetta ótrúlega leitt,“ segir Hannah Brown og lofar jafnframt að standa sig betur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“

Hrafnkell: „Ég er ekki sammála þessu“
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Hjúkrunarfræðingur og raðmorðingi – Nú er búið að kveða upp dóm

Hjúkrunarfræðingur og raðmorðingi – Nú er búið að kveða upp dóm
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Les farsíminn hugsanir þínar?

Les farsíminn hugsanir þínar?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

England: Haaland skoraði fernu í öruggum sigri Manchester City

England: Haaland skoraði fernu í öruggum sigri Manchester City
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Besta deildin: Tvenna Andra Rúnars dugði ekki til gegn FH

Besta deildin: Tvenna Andra Rúnars dugði ekki til gegn FH
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lengjudeildin: Dalvík/Reynir vann ÍBV í fyrstu umferð

Lengjudeildin: Dalvík/Reynir vann ÍBV í fyrstu umferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 20 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Auðlindir í auðmannaþágu

Sigmundur Ernir skrifar: Auðlindir í auðmannaþágu
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Óttast að ISIS láti til skarar skríða í Svíþjóð vegna Eurovision

Óttast að ISIS láti til skarar skríða í Svíþjóð vegna Eurovision

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.