fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fréttir

Samskiptastjóri flugfélagsins Play lætur af störfum

Tobba Marinósdóttir
Föstudaginn 1. maí 2020 12:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið Play stefndi á að hefja sölu á flugmiðum fyrir vorið að sögn forstjóra félagsins, Arn­ars Más Magnúsonar en ljóst er að svo verður ekki. Lítið hefur spurst til félagsins síðustu misseri en í vikunni virðist hafa rofað til með aukinni fjármögnun. Fram kom á vefnum turisti.is í vikunni að félagið væri komið með nægt fjár­magn til að hefja flug en biði á­tekta með að taka sína fyrstu vél í notkun og flugfélagið sé því langt frá því að leggja upp laupana heldur bíði átektar á rásmarkinu. Það vekur því athygli að samskiptastjóri Play, María Margrét Jóhannsdóttir hefur látið að störfum. María Margrét starfaði áður á markaðasviði WOWair og þar á undan sem blaðamaður en hún er með próf í alþjóðasamskiptum.  María Margrét þótti sýna vaska framgöngu í fjölmiðlafárinu sem einkenndi nýja félagið en nú stendur á svörum. Illa gengur að ná í forrystumenn flugfélagsins sem verjast allra fregna. Flest flugfélög heims eiga erfitt uppdráttar sem stendur vegna Corona veirunnar en samkvæmt frétt Mannlífs í vikunni stefnir Play á að hefja flug næsta vetur og er með flugrekstrarleyfi klár.

Ekki náðist í forstjóra né sölu- og markaðsstjóra Play við vinnslu fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

María Margrét ásamt forsvarsmönnum félagsins

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Gunnar segir sameiningu sveitarfélaga geta lagað vanda Bítlakynslóðarinnar – „Margfalt öflugri eining“

Gunnar segir sameiningu sveitarfélaga geta lagað vanda Bítlakynslóðarinnar – „Margfalt öflugri eining“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hótaði öðrum lífláti og stjórnaði hjólabát undir áhrifum – „Ég mun birtast einn daginn og brjóta hvert bein í andlitinu á þér fyrir framan börnin þín“

Hótaði öðrum lífláti og stjórnaði hjólabát undir áhrifum – „Ég mun birtast einn daginn og brjóta hvert bein í andlitinu á þér fyrir framan börnin þín“
Fréttir
Í gær

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni