fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Mikil gæfa hvað Íslendingum hefur tekist að hefta vöxt COVID-19 – Toppnum verður náð rétt fyrir páska

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 26. mars 2020 14:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á upplýsingafundi um COVID-19 í kynnti Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við HÍ, það spálíkan sem notast er við til að spá fyrir um þróun COVID-19 faraldursins.

Líkanið sýnir meðal annars að hér á landi hefur tekist vel til við að hefta útbreiðslu faraldursins og hefur okkur tekist að forðast svokallaðan veldisvöxt, en búum við heftan vöxt. Þetta má sjá á meðfylgjandi mynd:

Rauða línan sýnir veldisvöxt, eins og faraldurinn hefur til dæmis geisað í New York, en bláa línan sýnir heftan vöxt eins og er hér.

Einnig kom fram í kynningu Thors að flestir sem smitast hafa hér á landi eru á miðjum aldri og hefur tekist mjög vel að forðast smit í eldri borgurum.

Meginmarkiðið með heftum vexti er að takmarka álag á heilbrigðiskerfið. Að forðast smit í eldri borgurum er líka mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni því þörfin fyrir innlagnir á spítala verður miklu meiri þegar fleiri aldraðir smitast. Aldursdreifing smitaðra á Íslandi er því mjög hagstæð.

Búist er við því að faraldurinn nái hámarki hér á landi rétt fyrir páska, eða um svipað leyti og hann nær hámarki á Ítalíu.

Búist er við því að ástandið hér á landi hvað útbreiðslu kórónuveirunnar varðar verði orðið nokkuð gott í júní eða júlí.

Á fundinum kom einnig fram að í augnablikinu er ekki lengur skortur á sýnatökupinnum.

Mikil bjartsýni kom fram á fundinum um framhaldið. Sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að framundan væri mikið álag en við myndum komast í gegnum þetta og útlitið væri gott.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd