fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Fox on Route – Flökkurefurinn: Meðfærileg bíltjöld sem þola íslenska veðráttu

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 7. ágúst 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við vorum mikið að spá í tjöld sem pössuðu við íslenskar aðstæður og tókum okkur góðan tíma í að prófa þetta. Við vorum með tjald ofan jeppanum í heilt ár og tókum aldrei niður, sama hvernig viðraði. Það er til dæmis í þessu rafmagnskerfi sem mikilvægt er að þoli rigningu en það klikkaði aldrei allan tímann,“ segir Kolbeinn Hreinsson sem flytur inn bílatjöld undir merkinu Fox on Route. Starfsemin er hliðarbúgrein hjá Kolbeini og eiginkonu hans, Helenu Hermansen, en þau reka líka fyrirtækið M1 sem sérhæfir sig í fasteignaviðhaldi.

„Oft veldur raki myglu í tjöldum en það gerðist aldrei með þetta,“ bætir Helena við.

Bíltjöld eru mjög þægilegur kostur fyrir þá sem vilja ferðast um landið og tjalda þegar hentar án mikils fyrirvara. Þau eru líka óneitanlega þægilegri í meðförum en tjaldvagnar.

„Við vorum í jeppaklúbbi og ferðuðumst mikið um hálendið og drógum þá alltaf á eftir okkur fellihýsi. Mér fannst það alltaf nokkuð erfitt, þurfti sífellt að hækka vagnana upp og oft rákust þeir niður,“ segir Kolbeinn.

Tjöldin eru með sjálfvirkan upphífingarbúnað sem er tengdur í 12v og honum stýrt með fjarstýringu. Hann reisir tjaldið upp á einni mínútu. Innanmál hvers tjalds er 2 m x 1,4 m og gert er ráð fyrir því að 2–3 fullorðnir geti gist í tjaldinu.

Mynd: Brynja

Tjöldin eru regnheld og vindheld, með tveimur dýnum, ein ofan á hinni sem gerir svefninn þægilegri. Báðar dýnurnar eru vel einangraðar.

Tjöldin henta í hálendisferðir, veiðiferðir, norðurljósaferðir, útihátíðir, bæjarhátíðir eða hvers konar frí sem fólk er að fara í. Tjaldið kemst ávallt auðveldlega fyrir og allt sem bíllinn kemst það kemst tjaldið líka, ólíkt því sem getur gilt um tjaldvagna.

Mynd: Brynja

Sem fyrr segir hafa Helena og Kolbeinn látið reyna hressilega á tjöldin í íslenskri veðráttu og þau minnast þess þegar þau settu tjaldið einu sinni upp í kolvitlausu veðri:

„Þá varst þú nú hræddur,“ segir Helena og Kolbeinn játar því: „Já, ég hélt það myndi fjúka. En það fauk ekki. Þetta var úti við sjóinn, góð ölduhæð, hávaðarok. Ég hafði líka áhyggjur af því hvort hífingarbúnaðurinn myndi virka en hann þurfti að leggja sig saman á móti vindinum. En það var bara ekkert mál.“

Þess má geta að dóttir þeirra Helenu og Kolbeins, Kristín Birna Kolbeinsdóttir, hannaði merki fyrirtækisins. Fyrirtækið ber heitið Flökkurefurinn á íslensku en Fox on Route er enska heitið á því. Framleiðandinn er kínverskur en þau Kolbeinn og Helena völdu þennan framleiðanda eftir að hafa leitað lengi að tegund sem hentaði best íslenskum aðstæðum.

Flökkurefurinn miðar aðallega á íslenskan markað hvað snertir sölu á tjöldunum en líka er boðið upp á tjaldleigu sem erlendir ferðamenn nýta sér gjarnan.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni foxonroute.net þar sem sjá má frekari upplýsingar um tjöldin, verð og fleira auk mynda og myndbanda og á Facebook-síðunni Flökkurefurinn.

Einnig er gott að hafa samband við Kolbein eða Helenu í símum 896-6614 og 843-3230 ef áhugi er fyrir því að skoða tjöld. Jafnframt er hægt að senda póst á netfangið foxonroute@foxonroute.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum