fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stökk yfir girðingu á Reykjavíkurflugvelli – Var handtekinn 13 tímum áður

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 21. janúar 2020 08:12

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu í nótt um mann sem fór yfir girðingu Reykjavíkurflugvallar. Tilkynningin barst klukkan rétt rúmlega hálf þrjú og var maðurinn á göngu eftir flugbraut á vellinum.

Hann var handtekinn og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu, en hann er grunaður um að raska öryggi loftfara og húsbrot. Sami maður var einnig handtekinn rúmum 13 tímum áður fyrir sama brot. Þá var einnig búið að hafa afskipti af honum þar sem hann gat ekki greitt gjald fyrir akstur leigubifreiðar.

Lögregla fékk svo tilkynningu klukkan 22:30 í gærkvöldi um að flugeldi hafi verið kastað inn um glugga á baðherbergi íbúðar í Hafnarfirði. Eldur kom upp í fatnaði og skemmdir urðu á innréttingu baðherbergisins. Íbúar urðu varir við sprenginguna og voru búnir að slökkva eldinn þegar lögregla kom á vettvang.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“