fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Fréttir

Forræðislaus faðir mótmælti fyrir utan bæjarskrifstofur Seltjarnarness – Lögregla kom á vettvang

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 17. desember 2019 17:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega fimmtugur faðir stóð með mótmælaspjald fyrir utan Bæjarskrifstofur Seltjarnarness síðdegis í dag en mótmæli mannsins beinast gegn Fjölskyldunefnd Seltjarnarness.

Dóttir mannsins, sem er 14 ára gömul, er vistuð utan heimilis í sátt við móður hennar en móðirin fer með forræði stúlkunnar. Nánar tiltekið er dóttirin vistuð á fósturheimili á landsbyggðinni. Maðurinn mótmælir mjög takmarkaðri umgengni sinni við dótturina og seinagangi Fjölskyldunefndar Seltjarnarness við að úrskurða honum  umgengni.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur úrskurðað föðurnum í hag

Faðirinn hefur kært vinnubrögð Fjölskyldunefndar Seltjarnarness til Úrskurðarnefndar velferðarmála. Úrskurðarnefndin tekur undir með föðurnum í úrskurði sínum og segir hún að afgreiðsla nefndarinnar í máli hans sé ekki í samræmi við gildandi málshraðareglu stjórnsýslulaga. Hvetur úrskurðarnefndin fjölskyldunefndina til að hraða afgreiðslu máls föðurins um umgengni við dóttur hans eins og frekast er hægt.

Úrskurðurinn var kveðinn upp þann 19. nóvember síðastliðinn en þrátt fyrir það hefur ekkert gerst í máli mannsins. Segir hann að formaður fjölskyldunefndarinnar svari ekki tölvupóstum frá honum.

Maðurinn tók því til þess bragðs að standa með mótmælaspjald fyrir utan bæjarskrifstofurnar á Seltjarnarnesi auk þess að hafa samband við DV og greina frá máli sínu og senda DV afrit af úrskurði Úrskurðarnefndar velferðarmála.

Lögregla kom á vettvang eftir nokkra stund og bað manninn um að hafa sig brott og varð hann við tilmælum lögreglu. Virðist líklegt að starfsmenn á bæjarskrifstofum Seltjarnarness hafa hringt á lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

20% kvenna og 10% karla á Íslandi hafa orðið fyrir heimilisofbeldi

20% kvenna og 10% karla á Íslandi hafa orðið fyrir heimilisofbeldi
Fréttir
Í gær

Opnað fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2026

Opnað fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2026
Fréttir
Í gær

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið

Hneyksli hjá BBC: Stofnunin sögð hafa afbakað orð úr ræðu Trumps – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

Forsjárlaus 16 ára unglingur dæmdur fyrir ítrekaðar líkamsárásir gegn strætóbílstjóra

Forsjárlaus 16 ára unglingur dæmdur fyrir ítrekaðar líkamsárásir gegn strætóbílstjóra
Fréttir
Í gær

Framsóknarmenn vilja að veitt verði leyfi til að skjóta álftir – Hafa verið friðaðar í 112 ár

Framsóknarmenn vilja að veitt verði leyfi til að skjóta álftir – Hafa verið friðaðar í 112 ár