fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Mikil óánægja hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 6. desember 2019 07:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slökkviliðsmenn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru mjög óánægðir með samskiptin við yfirmenn. Þetta kemur fram í nýrri starfsánægjukönnun þar sem dökk mynd er dregin upp af líðan fólks í vinnunni. Svo virðist sem slökkviliðsmenn séu almennt frekar ósáttir í vinnunni og þá aðallega með samskipti sín við næstu yfirmenn.

Vísir skýrir frá þessu.

„Auðvitað taka allir svona til sín. Ég meina ég ber ábyrgð á þessari starfsemi og ef ég tæki ekki svona til mín væri það dapurt.”

Hefur Vísir.is eftir Jóni Viðari Matthíassyni, slökkviliðsstjóra.

Svipuð könnun var gerð í sumar í kjölfar ólgu vegna breytinga á vaktaplani. Könnunin er byggð á átta flokkum og féllu fimm þeirra í lægsta mögulega flokk í þeirri könnun. Í nýju könnuninni bættist einn flokkur til í hóp þeirra lægstu. Versta útkoman var í flokki þar sem spurt var hvort slökkviliðsmenn fái endurgjöf frá yfirmönnum og sú næst lægsta er í flokki þar sem spurt er um samskipti við yfirmenn.

„Á sama tíma og við erum með nýmenntun nýliða höfum við ekki náð að sinna endurmenntun starfsmanna sem er mjög miður. Og við erum með þannig hóp hjá okkur að menn eru mjög lærdómsfúsir og vilja að hlutirnir séu eins og eigi að vera og maður skilur það.”

Ef haft eftir Jóni Viðari sem benti á að fimmtíu nýir starfsmenn hafi verið ráðnir á síðustu þremur árum og að það hafi sett mark sitt á starfið. Hann sagðist hafa ákveðnar áhygjur af stöðunni og hefur starfshópur verið settur á laggirnar til að fara yfir mögulegar leiðir til að auka starfsánægju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“