fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Veður fer versnandi á höfuðborgarsvæðinu seinni partinn – Fólk hvatt til að sýna aðgát

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. nóvember 2019 14:50

Mynd: Dv/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill minna á slæma spá Veðurstofunnar, en spáð er roki seinni part dags, í kvöld og fram til morguns á höfuðborgarsvæðinu. Gul viðvörun er í gildi og hefur lögregla hvatt fólk til að ganga frá lausum munum til að forðast tjón.

Spáð er suðaustan stormi, 15 til 25 metrum á sekúndu, en hvassast verður á Kjalarnesi. Einnig má búast við mjög snörpum vindhviðum á Kjalarnesi, 25 til 30 metrum á sekúndu. Skýjað verður og úrkomulítið, en dálítil rigning af og til í nótt. Suðaustan 5-8 eftir hádegi á morgun. Hiti verður 2 til 5 stig.

„Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón. Einnig vill lögreglan beina þeim tilmælum til verktaka að ganga vel frá byggingar – og framkvæmdasvæðum sínum og girðingum í kringum þau,“ segir lögreglan í færslu á Facebook-síðu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa