fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fréttir

Jóna Guðrún situr uppi með milljón króna reikning eftir að lykilorði hennar var stolið

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 31. október 2019 07:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðasta mánudag sá Jóna Guðrún Ólafsdóttir að greiðsluseðlar upp á rúmlega eina milljón voru komnir í heimabanka hennar. Hún kannaðist ekki við færslurnar sem voru vegna viðskipta í Elko. Þegar hún skoðaði málið betur sá hún að dóttir hennar, sem er í mikilli fíkniefnaneyslu, hafði stofnað reikning í nafni hennar á greiðslusmáforritinu Pei og hafði þannig getað keypt raftæki fyrir þessa upphæð.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.

„Að öllum líkindum hefur hún komist yfir lykilorðið mitt á Íslyklinum og það dugði til þess að stofna reikning í mínu nafni inni á þessu greiðsluforriti. Síðan fæ ég bara fjóra greiðsluseðla inn á heimabanka minn upp á rúma eina milljón króna samtals og hef fjórtán daga til að borga.“

Hefur blaðið eftir Jónu Guðrúnu en hún hefur talað opinskátt um reynslu sína sem aðstandandi fíkils. Hún hefur lent í margskonar sambærilegum vandræðum vegna dóttur sinnar en segir að yfirleitt hafi fyrirtækin, sem hafi átt í hlut, tekið einhverja ábyrgð á sig. Um slíkt sé þó ekki að ræða í þessu máli þar sem Elko og Greiðslumiðlun, sem rekur Pei, vilji ekki taka neina ábyrgð.

„Viðmótið hjá báðum þessum fyrirtækjum er að ég eigi að sitja uppi með tjónið. Nafn dóttur minnar kemur fram sem kaupandi að raftækjunum hjá Elko en reikningurinn er sendur á mig. Það kvikna engar spurningar þó að kona í annarlegu ástandi kaupi raftæki fyrir rúmlega milljón í fjórum ferðum og á reikning annars aðila.“

Er haft eftir Jónu Guðrúnu sem hefur leitað til lögfræðings vegna málsins og hyggst kanna rétt sinn.

Bjarni Þór Óskarsson, lögmaður Greiðslumiðlunar, vill ekki tjá sig um einstök mál en staðfesti að nóg sé að komast yfir lykilorð á Íslykli og kennitölur til að geta skráð sig inn á greiðslulausnina.

„Það er raunveruleikinn í dag á þessum tímum rafrænna lausna. Það er mikilvægt að fólk passi upp á lykilorðin sín.“

Er haft eftir honum. Einnig sagði hann að fjársvik í gegnum Pei væru afar sjaldgæf en þó hafi nokkur tilvik komið upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi