Diklofenak Apofri hlaup hefur bólgueyðandi verkun og dregur úr verkjum.
Margir sem þjást af staðbundnum verkjum geta ekki tekið inn bólgueyðandi verkjalyf vegna aukaverkana sem geta fylgt notkun þeirra.
„Bólgueyðandi verkjalyf til inntöku geta valdið ertingu í meltingarvegi. Því getur verið gott að hafa valmöguleika um staðbundna meðferð, eins og með Diklofenak Apofri hlaupi,“ segir Sigrún Sif, lyfjafræðingur hjá LYFIS. „Lyf til staðbundinnar notkunar hafa færri aukaverkanir en lyf til inntöku þar sem þau frásogast aðeins að litlu leyti inn í blóðrásina“.
Diklofenak Apofri hlaup inniheldur diclofenac tvíetýlamín, 11,6 mg/g, og er bólgueyðandi lyf og dregur úr verkjum og er notað til meðferðar á staðbundnum verk í tengslum við meiðsli í vöðva eða lið. Hlaupið er ætlað fullorðnum og börnum, 14 ára og eldri.
„Diklofenak Apofri hlaup er borið á húð, á aumt og bólgið svæði, 3 til 4 sinnum á dag og er nuddað varlega inn í húðina“ upplýsir Sigrún Sif. „Hlaupið fæst í tveimur pakkningastærðum, 60 g túpu og 100 g túpu. Lyfið er til í flestum apótekum og er á góðu verði.“
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.