fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Fókus

Vera segir sögu

Kolbrún Bergþórsdóttir
Mánudaginn 12. júní 2017 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki öllum gefið að endursegja vel þekktar sögur úr raunveruleikanum. Þessa list kann Vera Illugadóttir svo sannarlega. Ég var um það bil að slökkva á útvarpinu eitt helgarsíðdegi þegar ég heyrði rödd hennar. Hún var að láta hlustendur ímynda sér að Karl Bretaprins hefði myrt fjölskyldu sína. Ég gat ekki annað en lagt við hlustir. Vera vék síðan sögunni til Nepal þar sem voðaatburðir urðu í konungshöllinni árið 2001. Ég mundi þokkalega vel eftir þeirri frétt en frásögn Veru var svo lifandi og grípandi að ég settist niður og hlustaði til enda á harmræna sögu af prinsinum sem fékk ekki að ganga að eiga konuna sem hann elskaði og brást við á skelfilegan hátt.

Vera kann að segja sögu. Þarna lýsti hún öllum persónum þannig að þær urðu lifandi í huga manns og skapaði um leið andrúmsloft sem var þrungið spennu. Þegar kom svo að hinum örlagaríku atburðum varð maður hreinlega skelfdur, svo áhrifamiklar voru lýsingar Veru.

Þessi þáttur var endurfluttur, eins og ber að gera þegar efni eins og þetta á í hlut. Vera er frábær útvarpskona og efni hennar á að heyrast sem oftast. Hún kann að segja sögu þannig að maður leggur við hlustir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Heiðra afmælisbarn með nýrri ábreiðu á In The Air Tonight

Heiðra afmælisbarn með nýrri ábreiðu á In The Air Tonight
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kvikmyndastjarna frá tíunda áratugnum nær óþekkjanleg

Kvikmyndastjarna frá tíunda áratugnum nær óþekkjanleg
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur hefur áhyggjur af földum faraldri sem spilar stóran þátt í lífi fólks – „Þessu fylgir mikil skömm“

Ragnhildur hefur áhyggjur af földum faraldri sem spilar stóran þátt í lífi fólks – „Þessu fylgir mikil skömm“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sambandssaga stórleikarans – Þekktur fyrir að sparka þeim þegar þær verða 25 ára

Sambandssaga stórleikarans – Þekktur fyrir að sparka þeim þegar þær verða 25 ára
Fókus
Fyrir 6 dögum

Svona hófst ástarsamband hans og Jennifer – „Það tók langan tíma“

Svona hófst ástarsamband hans og Jennifer – „Það tók langan tíma“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Stjörnukokkurinn breytti algjörlega um útlit og fólk er agndofa – „Ég sagði: Mamma, þetta er ég“

Stjörnukokkurinn breytti algjörlega um útlit og fólk er agndofa – „Ég sagði: Mamma, þetta er ég“