fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fókus

Segir að Bandaríkin séu of hættulegur staður til að ferðast þangað

Fókus
Föstudaginn 30. janúar 2026 16:30

Brian May. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brian May, gítarleikari hljómsveitarinnar Queen, segir að Bandaríkin séu orðin of hættulegur staður til að hljómsveitin geti farið í tónleikaferð þangað á næstunni. Þetta kemur fram í viðtali hans við breska miðilinn Daily Mail.

May, sem er 78 ára, sagði að ákvörðunin um að útiloka Bandaríkin sem tónleikastað hafi ekki verið tekin af léttúð. Queen fór síðast í tónleikaferð um Bandaríkin árið 2023 ásamt söngvaranum Adam Lambert.

„Bandaríkin eru hættulegur staður um þessar mundir og það verður að taka það með í reikninginn,“ sagði May. Hann bætti við að þetta væri honum sárt, þar sem segja mætti að Queen hefði „alist upp“ í Ameríku og átt þar sterkan aðdáendahóp. Landið væri því miður ekki lengur það sama og áður.

May tilgreindi ekki nákvæmlega hvaða aðstæður í Bandaríkjunum hann teldi óöruggar, en ummælin koma fram á sama tíma og aukin pólitísk spenna og mótmæli hafa átt sér stað víða í landinu.

Eiginkona May til 26 ára, Anita Dobson, hefur nýverið sagt að hún vilji að hann hætti að túra og eyði meiri tíma heima, sérstaklega í ljósi þess að May fékk heilablóðfall fyrir nokkrum árum.

Brian May og trommuleikari Queen, Roger Taylor, hafa túrað með Lambert síðan 2012, en nýjustu tónleikaferð sveitarinnar lauk í febrúar 2024 með tónleikum í Tókýó.

May útilokaði þó ekki að Queen myndi snúa aftur á svið síðar meir og gaf í skyn að ný tónlist gæti jafnvel verið í smíðum, þó ekkert væri ákveðið að svo stöddu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Dánarorsök Catherine O‘Hara gerð opinber

Dánarorsök Catherine O‘Hara gerð opinber
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón gerði könnun á Litla-Hrauni – „Þegar sjö rétta upp hönd, erum við þá ekki að gera eitthvað skakkt sem samfélag?”

Jón gerði könnun á Litla-Hrauni – „Þegar sjö rétta upp hönd, erum við þá ekki að gera eitthvað skakkt sem samfélag?”
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sævar Karl selur einstaka eign

Sævar Karl selur einstaka eign
Fókus
Fyrir 1 viku

Réttað yfir svarta sauði norsku konungsfjölskyldunnar – Móðir hans er verðandi drottning en hver er pabbi hans?

Réttað yfir svarta sauði norsku konungsfjölskyldunnar – Móðir hans er verðandi drottning en hver er pabbi hans?
Fókus
Fyrir 1 viku

Kim Kardashian í eldheitu ástarsambandi með heimsfrægum kærasta

Kim Kardashian í eldheitu ástarsambandi með heimsfrægum kærasta