fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
Fókus

Stjörnukokkurinn breytti algjörlega um útlit og fólk er agndofa – „Ég sagði: Mamma, þetta er ég“

Fókus
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 15:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjörnukokkurinn Guy Fieri hefur lengi haft sama stílinn, bæði hvað varðar hárgreiðslu, skegg og fatastíl. Það kom því aðdáendum rækilega á óvart þegar Fieri frumsýndi á dögunum nýtt útlit. Einkenni Fieri var lengi vel hárið hans og skeggið. Hann aflitaði hárið og lét það standa upp í loftið og var alltaf með svokallað geitarskegg (e. goatee).

Nú hefur hann rakað sig og leyft náttúrulegum hárlitnum að njóta sín. Skopparaklæðnaðurinn hefur vikið fyrir stíl sem minnir helst á úthverfapabba á miðjum aldri. Hann segir í samtali við People að hann hafi gert þetta fyrir Ofurskálina þar sem hann leikur í auglýsingu fyrir fyrirtækið Bosch. Framleiðendur auglýsingarinnar báðu hann um að ráðast í eins dramatíska breytingu og hægt væri til dæmis að raka skeggið.

„Ég sendi mynd á mömmu og hún spurði: Hver er þetta?,“ segir Fieri í samtali við People. „Hún sagði: Þetta er mjög líkt þér, en ég veit að þetta getur ekki verið þú. Ég sagði: Mamma, þetta er ég.“

Fieri ákvað að deila mynd með aðdáendum sínum á fimmtudaginn í tilefni 58 ára afmælis síns. Með myndinni skrifaði hann færsluna:

„Hey öll. Eftir að hafa fagnað afmæli mínu árum saman sem Guy ákvað ég að fagna því í ár sem bara einhver gaur [e. guy].“

Eftir að myndin birtist fyrst töldu margir að Fieri hefði þarna leikið sér með gervigreind. Fulltrúar Bosch hafa þó staðfest að Fieri hafi raunverulega ráðist í þessa breytingu. Fram hefur þó komið að Fieri var þarna með hárkollu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Billie Eilish sökuð um hræsni eftir þakkarræðu sína – „Enginn er ólöglegur á stolnu landi“

Billie Eilish sökuð um hræsni eftir þakkarræðu sína – „Enginn er ólöglegur á stolnu landi“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Byrjaði á þyngdarstjórnunarlyfjum en bjóst aldrei við þessu – Mittismálið minnkaði en annað fór að stækka

Byrjaði á þyngdarstjórnunarlyfjum en bjóst aldrei við þessu – Mittismálið minnkaði en annað fór að stækka
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni

Ákveðin tegund fíknar virðist vera á uppleið – Svipuð dópamínáhrif og af kókaíni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Fyrrverandi keppandi í The Voice lést eftir sviplegt atvik á heimili sínu

Fyrrverandi keppandi í The Voice lést eftir sviplegt atvik á heimili sínu
Fókus
Fyrir 1 viku

Laufey hlaut Grammyverðlaun aftur!

Laufey hlaut Grammyverðlaun aftur!
Fókus
Fyrir 1 viku

Milljónir hafa heyrt hann syngja en enginn séð hann – Sturtusöngvari opinberar sig í einstöku atriði

Milljónir hafa heyrt hann syngja en enginn séð hann – Sturtusöngvari opinberar sig í einstöku atriði