fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025

Justin Bieber opnar sig sem aldrei fyrr: „Ég byrjaði að nota frekar hörð fíkniefni 19 ára“

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 3. september 2019 08:38

Justin Bieber.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórstjarnan Justin Bieber er að opna sig sem aldrei fyrr. Hann deildi mjög einlægri færslu með fylgjendum sínum á Instagram.

Hann hefur áður opnað sig um erfiðleika sína og í febrúar á þessu ári var hann í meðferð við þunglyndi.

„Ég var átján ára með enga hæfileika í raunheiminum, með milljón dollara og aðgang að hverju sem ég vildi. Það er mjög ógnvekjandi hugsun fyrir hvern sem er. Þegar ég var 20 ára hafði ég tekið allar þær slæmu ákvarðanir sem þér gæti dottið í hug og ég fór frá því að vera ein af mest elskuðu og dýrkuðu manneskjum í heiminum í að vera mesta athlægið og dæmda og hataðasta manneskja í heimi!“

Skrifaði Justin Bieber á Instagram í gær.

 „Ég byrjaði að nota frekar hörð fíkniefni 19 ára og fór illa með öll sambönd mín. Ég varð móðgunargjarn og virðingarlaus gagnvart konum og reiður. Ég fjarlægðist alla sem elskuðu mig og var að fela mig á bak við skel af þeirri manneskju sem ég var orðinn að. Mér fannst eins og ég gæti aldrei snúið því við.“

En nú er byrjað að birta til hjá Justin.

„Það hefur tekið mig mörg ár að koma til baka frá öllum þessum hræðilegu ákvörðunum, laga brotin sambönd og breyta sambandshegðun minni. Sem betur fer blessaði Guð mig með mögnuðu fólki sem elskar mig fyrir mig. Nú er ég að fara í gegnum besta tímabil ævi minnar, HJÓNABAND! Sem er ótrúleg klikkuð ný ábyrgð. Þú lærir þolinmæði, traust, skuldbindingu, góðmennsku, hógværð og alla þá hluti sem það þarf til að vera góður karlmaður.“

Lestu alla færslu Justins í heild sinni hér að neðan.

https://www.instagram.com/p/B17JfkkHEKt/?utm_source=ig_embed

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Pólskipti segulpólanna gætu hafa gert út af við Neanderdalsmenn

Pólskipti segulpólanna gætu hafa gert út af við Neanderdalsmenn
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Trump ekki í hátíðarskapi – Harðlega gagnrýndur fyrir að ala á sundrungu – „Ég hata þá“

Trump ekki í hátíðarskapi – Harðlega gagnrýndur fyrir að ala á sundrungu – „Ég hata þá“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þorsteinn: „Erum komin með bakið upp við vegg“

Þorsteinn: „Erum komin með bakið upp við vegg“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Palmer stjarnan í stórfurðulegri auglýsingu – Sjáðu myndbandið

Palmer stjarnan í stórfurðulegri auglýsingu – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum
Kyle Walker í Burnley
EyjanFastir pennar
Fyrir 11 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó
Eyjan
Fyrir 13 klukkutímum

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Rashford missir númerið í Manchester

Rashford missir númerið í Manchester

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.