fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Fréttir

Haukur segir transfólki að læra að taka gríni – „Róum okkur nú aðeins!“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 6. ágúst 2019 16:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haukur Örn Birgisson, lögmaður og pistlahöfundur í Fréttablaðinu talar um grín sem gert er á kostnað jaðarhópa í bakþönkum blaðsins í dag. Tilefni skrifa hans er skopmynd Helga Sigurðssonar sem sætti harðri gagnrýni fyrir stuttu.

Steindór segir skopmynd Morgunblaðsins í dag viðbjóð:„Ég læt andlitið hans fylgja með“

„Til eru hópar í samfélaginu sem eiga undir högg að sækja. Þeir standa öðrum ekki jafnfætis þegar kemur að ýmsum réttindum, umfjöllun og virðingu. Í gegnum árin, áratugina og jafnvel aldirnar hafa þeir mátt þola níð, fordóma og óréttlæti af hálfu annarra. Með stöðugri baráttu sinni fyrir málstaðnum hefur þó flestum þeirra tekist að rétta hlut sinn. Baráttan skilar árangri.“

Haukur segir það sjaldan gerast að barátta og ofurviðkvæmni gangi saman hönd í hönd.

„Þótt þú standir í baráttu þá þýðir það ekki að allir séu á móti þér. Samsærið nær sjaldnast svo langt.“

Hann talar því næst um skopmynd Helga Sigurðurðssonar. Skopmyndin sem um ræðir gerði grín að transfólki og gaf í skyn að lög um kynrænt sjálfræði myndi gera það að verkum að karlar noti búningsklefa kvenna. Þetta vakti mikla umræðu í samfélaginu

Skopmynd sem sýndi feitan og krumpaðan karlmann í kvennaklefa sundlaugar vakti um daginn hörð viðbrögð þeirra sem hafa sett baráttu transfólks á oddinn. Með myndinni var gert grín að nýjum lögum um kynrænt sjálfstæði. Formaður transfólks réði sér vart af vandlætingu og kallaði myndina „hræðsluáróður“ og gerði teiknaranum upp alls kyns annarlegar hvatir og þar með þeim lesendum sem brostu yfir myndinni. Það er stutt í að hugtakið „haturs­orðræða“ skjóti upp kollinum og löggan verði kölluð til.“

Hauki finnst að fólk þurfi að róa sig niður og segir að honum finnist teikningin vera fyndin. Hann segir það ekki skipta máli að öðrum finnist það ekki.

„Róum okkur nú aðeins! Mér fannst teikningin fyndin en ég skil vel að ekki öllum hafi fundist það. Það skiptir bara engu máli. Húmor verður aldrei skilgreindur og það fær enginn að ákveða fyrir aðra hvað telst fyndið. Þá er engum hollt að taka sjálfan sig of hátíðlega því fáir eru staddir á svo alvarlegum stað í lífinu að ekki megi skopast að því.“

Haukur botnar pistilinn sinn með því að segja að transfólk þurfi að sætta sig við það að aðrir geri grín að því.

„Ég vil transfólki allt hið besta en það, eins og allir aðrir, verður að þola að gert sé grín að því, því mikið væri lífið nú leiðinlegt ef allir brandarar fjölluðu um lögfræðinga og Hafnfirðinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slagsmál á ströndinni eftir að rússneskt lag var spilað – Sjáðu myndbandið

Slagsmál á ströndinni eftir að rússneskt lag var spilað – Sjáðu myndbandið