„Nýlega spratt upp umræða á Twitter um eftirlitsmyndavél við Einarsnes í Skerjafirði. Hún er merkt umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að myndefninu er varpað, að ósk borgarinnar, í beinni útsendingu á vefsíðu Vegagerðarinnar.“
Þetta segir Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í aðsendri grein sem birt er í Fréttablaðinu í dag. Þar furðar hún sig á því að eftirlitsmyndavélum hafi verið komið fyrir víða og veltir fyrir sér tilganginum.
„Nú veit ég ekki hvort íbúar við götuna, eða aðrir vegfarendur, eru sáttir við að vera í beinni útsendingu á netinu allan sólarhringinn, en málið vakti furðu mína. Við nánari eftirgrennslan komst ég að því að umhverfis- og skipulagssvið er með átta eftirlitsmyndavélar víðsvegar í borgarlandinu. Tilgangurinn er sagður vera sá að fylgjast með færð vega!“
Katrín bendir svo á að lögreglan sé með tugi myndavéla í borginni og vilji tvöfalda fjöldann.
„Áður fyrr var þessu eftirliti yfirleitt stýrt af fólki. Nú er því stýrt af tölvum sem hafa mikla vinnslugetu og geta unnið úr öllum upplýsingum jafnóðum. Andlitsgreining getur greint einstaklinga á mynd á augabragði, greint kyn, hvort viðkomandi er með tösku og margt fleira. Eftir því sem eftirlitsmyndavélum er fjölgað er auðveldara fyrir stjórnvöld (eða Vegagerðina í tilfelli Einarsness) að fylgjast með ferðum fólks, án nokkurs lögmæts tilefnis,“ segir Katrín í grein sinni.
Hún bendir svo á að stjórnvöld í Kína hafi víða sett upp eftirlitsmyndavélar í landinu og notað þær til að fylgjast með fólki hvert sem það fer. Sama eigi við um nokkrar borgir í Bandaríkjunum og þar í landi sé rætt um slíkt eftirlit í skólum.
„Félagi minn fór nýlega um LAX flugvöllinn í Los Angeles án þess að þurfa að sýna vegabréf, vélarnar þekktu hann. Þegar tækninni fleygir fram þarf að doka við og stíga varlega til jarðar. Þarf að fylgjast með færð á Einarsnesi á sumrin eða yfirleitt? Talsmenn eftirlitssamfélags segja oft að þeir hafi ekkert að fela, eftirlitið sé til þess að góma lögbrjóta. En við megum ekki byggja upp samfélag þar sem allir eru sjálfkrafa tortryggðir meðan langflestir fara að lögum og reglum. Áður var viðkvæðið að fylgjast með þeim sem gerðu eitthvað af sér. Nú virðist það vera að fylgjast með öllum, alls staðar, öllum stundum.“