fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Forseti Þýskalands heimsækir Ísland 

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 5. júní 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, og Elke Büdenbender forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í næstu viku ásamt fylgdarliði. Gert er ráð fyrir að þau dvelji hér dagana 12. og 13. júní en haldi af landi brott föstudaginn 14. júní, samkvæmt tilkynningu frá Bessastöðum.

Heimsóknin hefst með formlegri móttökuathöfn á Bessastöðum kl. 10:00 miðvikudaginn 12. júní. Forseti Íslands mun síðan eiga fund með forseta Þýskalands og forsetarnir ræða við blaðamenn eftir það. Í kjölfarið taka við hádegisverður í Marshallhúsinu í boði Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, heimsókn í Alþingi og fundur með forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum.

Síðdegis opnar forseti Þýskalands formlega sýningu í Árbæjarsafni til minningar um Þjóðverja sem fluttu búferlum til Íslands á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. Eliza Reid forsetafrú og Elke Büdenbender forsetafrú Þýskalands munu heimsækja samhæfingarmiðstöðina í Skógarhlíð fyrir hádegi og stoðtækjafyrirtækið Össur eftir hádegið.

Loks bjóða forseti Íslands og forsetafrú til stuttra tónleika Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara í Eldborg og síðan hátíðarkvöldverðar á Kolabrautinni miðvikudaginn 12. júní.

Fimmtudaginn 13. júní halda gestirnir í Hellisheiðarvirkjun og fræðast um jarðhitanýtingu auk þess sem þau skoða eldgosasýninguna á Hvolsvelli. Þaðan er farið að rótum Sólheimajökuls í fylgd skólanema úr Hvolsskóla þar sem sjá má glöggt dæmi um hversu hratt jöklar landsins hafa hopað síðustu áratugina.

Þaðan verður haldið að Landeyjahöfn og siglt til Vestmannaeyja þar sem forsetahjónin heimsækja nokkra staði, þar á meðal Eldheima, fiskiskip og nýja hitaveitu, sem opnuð var formlega í bænum fyrir skömmu, auk þess sem þau ganga með fylgdarliði sínu á Eldfell.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að